Fyrirtækjaþjónusta
Skráðu fyrirtækið þitt á Myntkaup og þú getur fjárfest í Bitcoin hratt og örugglega.
Skráningarferlið er einfalt
Við sækjum ítarlegri upplýsingar um fyrirtækið þitt eftir að þú hefur sent okkur tölvupóst. Það tekur svo almennt 1-2 virka daga að klára skráningarferlið. Sendu okkur póst á myntkaup@myntkaup.is.
Nýskráning fyrirtækis
Sendu póst á myntkaup@myntkaup.is með kennitölu og nafni fyrirtækis og við hjálpum þér að skrá fyrirtækið þitt á Myntkaup.
Við höfum samband
Að nýskráningu lokinni munum við hafa samband við þig og fá ítarlegri upplýsingar um fyrirtækið þitt áður en þú getur byrjað að fjárfesta.
Kauptu bitcoin
Þegar þú hefur klárað ferlið þá getur þú lagt inn pening og byrjað að stunda viðskipti með bitcoin!
Hvernig stofna ég fyrirtækjareikning?
Fyrsta skrefið er að senda okkur póst á myntkaup@myntkaup.is með nafni og kennitölu fyrirtækisins. Við könnum hverjir eru raunverulegir eigendur, framkvæmum áreiðanleikakönnun, biðjum þig að svara nokkrum spurningum og stofnum svo reikninginn.
Fær fyrirtækið yfirlit fyrir bókhaldið?
Já. Fyrirtæki fá öll þau yfirlit sem endurskoðandi eða bókari þarf, þar á meðal færslusögu og árslokayfirlit sem CSV eða PDF. Hægt er að sækja þau í vefappinu undir Færslur → Export eða fá þau send í tölvupósti.
Hvað kostar fyrir fyrirtæki?
Gjöld eru samkvæmt gjaldskrá Myntkaupa og útskýrð á síðunni Kostnaður. Ef fyrirtækið ætlar að eiga viðskipti fyrir háar fjárhæðir geturðu haft samband og spurt um afslátt af gjöldum.
Er Myntkaup með starfsleyfi?
Já. Myntkaup ehf. er með starfsleyfi frá Seðlabanka Íslands sem þjónustuveitandi sýndareigna (CASP) samkvæmt MiCA. Nánar á síðunni Starfsleyfi og öryggi.