Um okkur
Myntkaup var stofnað snemma árs 2019 og hóf starfsemi í maí 2020.

Saga félagsins og markmið
Myntkaup var stofnað snemma árs 2019 og hóf starfsemi í maí 2020. Markmið stofnenda Myntkaupa er að bjóða Íslendingum upp á einfalda og örugga leið til þess að stunda viðskipti með Bitcoin og aðrar rafmyntir. Við viljum stuðla að því að Íslendingar tileinki sér rafmynta- og bálkakeðjutæknina svo við verðum ekki eftirbátar annarra þjóða í þessum efnum.
Myntkaup býður upp á einfalt viðmót þar sem viðskiptavinum gefst kostur á að nýskrá sig með rafrænum skilríkjum og leggja inn fjármuni á auðveldan máta svo hægt sé að byrja að stunda viðskipti hratt og örugglega. Myntkaup státar sig af því að bjóða upp á skjótvirkustu leiðina fyrir Íslendinga til þess að koma krónum í rafmyntir, en með Myntkaup appinu geturðu komið krónum í rafmyntir á örfáum mínútum alla daga ársins hvenær sem er sólarhringsins.
20.500+
Fjöldi skráðra viðskiptavina
330+
Fjöldi fyrirtækja í viðskiptum
~6,4%
Hlutfall lögráða Íslendinga á Myntkaup
27ma+
Heildarvelta frá upphafi
Teymið

Patrekur Maron Magnússon
Framkvæmdastjóri
Patrekur er tölvunarfræðingur að mennt sem hefur mikinn áhuga á Bitcoin og bálkakeðjum. Patrekur stofnaði Myntkaup vegna þess að honum fannst vanta samastað fyrir Íslendinga til þess að geta fræðst um og stundað viðskipti með bitcoin og aðrar rafmyntir.

Kjartan Ragnars
Regluvörður
Kjartan er lögfræðingur og hefur tekið þátt í starfi Myntkaupa allt frá upphafi. Hann situr í stjórn félagsins og er einn af hluthöfum þess. Kjartan hefur umtalsverða reynslu af því að fjalla um Bitcoin á opinberum vettvangi, einkum í útvarpsviðtölum og hlaðvarpsþáttum.

Magnús Kristinn Jónsson
Fjármálastjóri
Magnús er verkfræðingur með yfir 15 ára reynslu úr fjármálageiranum á sviði áhættu- og eignastýringar. Hann vann við áhættustýringu í Búnaðarbankanum og Kaupþingi og tók síðan við sem forstöðumaður áhættustýringar hjá Sparisjóðabankanum (Icebank). Hann starfaði síðan fyrir skilanefnd og slitastjórn bankans eftir að bankinn fór í slitameðferð við eignaumsýslu eigna bankans og bar ábyrgð á fjárstýringu þrotabúsins ásamt öðrum verkefnum.

Garðar Karl Ólafsson
Yfirmaður viðskiptaþróunar
Garðar er er viðskiptafræðingur með meistaragráðu í fjármálum fyrirtækja og er auk þess með próf í verðbréfaviðskiptum og diplóma í alþjóðasamskiptum. Garðar hefur víðtæka reynslu af störfum á fjármálamarkaði ásamt verkefnum í fjártækni og ráðgjöf.

Sigurður Kári Árnason
Tæknistjóri
Sigurður er stærðfræðingur sem hefur starfað við hugbúnaðarþróun í yfir áratug. Áður en hann kom til Myntkaupa vann Sigurður sem forritari og hefur hann í starfi sínu sinnt hönnun og útfærslu á verkefnum í bakenda, framenda og innviðum hjá tæknifyrirtækjunum TripAdvisor, Controlant og Bókun.
Sæktu Myntkaup appið í dag
Með Myntkaup appinu geturðu keypt og selt Bitcoin, Ethereum, Solana og fleiri rafmyntir. Þú getur fylgst með gengi og eignastöðu í rauntíma á einfaldan hátt.
