Starfsleyfi og varsla

Með starfsleyfi frá Seðlabanka Íslands

Myntkaup ehf. er þjónustuveitandi sýndareigna (CASP) samkvæmt MiCA. Hér er útskýrt hvað leyfið nær til og hvernig eignir viðskiptavina eru geymdar.

Starfsleyfi
Leyfishafi
Myntkaup ehf.
Kennitala
520717-0800
Tegund
Þjónustuveitandi sýndareigna (CASP)
Lagagrunnur
MiCA, reglugerð (ESB) 2023/1114
Eftirlit
Seðlabanki Íslands
Útgefið
25. júní 2026
Tilkynning Seðlabankans

Það sem leyfið nær til

Varsla

Varsla og umsýsla

Við geymum og höldum utan um sýndareignir fyrir hönd viðskiptavina.

Krónur og rafmyntir

Skipti fyrir fjármuni

Þú kaupir rafmyntir og selur þær aftur fyrir fjármuni.

Rafmynt í rafmynt

Skipti milli sýndareigna

Þú skiptir einni sýndareign beint í aðra.

Millifærslur

Millifærsluþjónusta

Við sendum sýndareignir á þitt eigið veski eða annan vettvang.

Í október 2026 er Myntkaup eini aðilinn á skrá Seðlabankans yfir þjónustuveitendur sýndareigna.

Hvernig eignirnar eru geymdar

Við notum blandað vörslufyrirkomulag sem sameinar skjótt aðgengi og öryggi.

Enginn einn lykill

Við notum Multi-Party Computation (MPC) frá Fireblocks. Lyklinum er skipt í marga hluta á aðskildum kerfum, svo tölvuþrjótur þyrfti að komast inn í mörg kerfi samtímis.

Undirvörsluaðilar með starfsleyfi

Verulegur hluti eigna viðskiptavina er í vörslu Coinbase í Lúxemborg og Kraken á Írlandi. Báðir eru með starfsleyfi sem þjónustuveitendur sýndareigna innan ESB.

Nákvæm skrá yfir hvern viðskiptavin

Hluti eigna er geymdur í sameiginlegum veskjum (e. omnibus wallets), en kerfið okkar skráir nákvæmlega hvað tilheyrir hverjum og einum á hverjum tíma.

Eignirnar þínar eru þínar

  • Lagalega aðskildar frá eignum Myntkaupa.
  • Varðar fyrir kröfum lánadrottna ef félagið yrði gjaldþrota.
  • Aldrei lánaðar út eða notaðar í eigin fjárfestingar.

Íslendingar treysta Myntkaupum

25.000+skráðir viðskiptavinir
30,6%íslenskra rafmyntaeigenda nota Myntkaup
62ma+króna heildarvelta frá upphafi
2020hóf starfsemi í maí

Hlutfall rafmyntaeigenda: Nordic Crypto Adoption Survey 2025, K33 Research og Nordic Blockchain Association, 28. mars 2025, bls. 100.

Þú getur tekið út hvenær sem er

Úttektir fara fram í appinu eða á vefnum. Tvær leiðir eru í boði.

Á íslenskan bankareikning

Þú selur rafmyntina, færð USDC og biður um bankaúttekt. Úttektir eru afgreiddar alla daga og berast yfirleitt samdægurs, oft innan nokkurra klukkustunda.

Leiðbeiningar um bankaúttekt

Á þitt eigið veski

Allar studdar rafmyntir nema USDC getur þú sent á eigið veski á upprunaneti myntarinnar.

Leiðbeiningar um rafmyntaúttekt

Hver úttekt er staðfest með PIN-númeri í appinu og í tölvupósti. Óvenju stórar úttektir geta kallað á handvirka öryggisathugun áður en fjármunir eru sendir.

Hver ber ábyrgð ef eitthvað fer úrskeiðis

Myntkaup ber ábyrgð

  • Ef tap má rekja til atviks á okkar valdi, til dæmis netárásar á kerfi okkar eða þjófnaðar starfsmanns.
  • Þá endurgreiðum við þér markaðsvirði eignanna sem töpuðust.

Utan okkar stjórnar

  • Bilanir í bálkakeðjunni sjálfri eða 51% árásir á netið.
  • Ef þú hleypir óviðkomandi aðila inn á reikninginn þinn.
Stjórnendur Myntkaupa á skrifstofunni í Borgartúni

Fólk sem svarar þér

Sendu okkur póst á myntkaup@myntkaup.is eða notaðu samskiptaformið.

Viltu frekar tala saman? Biddu um símtal og við hringjum, yfirleitt innan 48 klukkustunda og oft fyrr.

Ef þú vilt kvarta

Kvörtun sendir þú í tölvupósti eða í gegnum samskiptaformið. Svona er ferlið.

  1. Innan 5 virkra daga

    Við staðfestum móttöku skriflega og gefum málinu tilvísunarnúmer.

  2. Innan 30 daga

    Við stefnum að formlegu svari. Ef málið tekur lengri tíma látum við þig vita.

  3. Ef þú unir ekki niðurstöðunni

    Þú getur óskað eftir innri endurskoðun, leitað til úrskurðaraðila þar sem það á við eða beint kvörtuninni til Seðlabanka Íslands.

Verð rafmynta getur sveiflast mikið og þú getur tapað fé. Fjárfestu ekki meira en þú hefur efni á að tapa.

Síðast yfirfarið 18. október 2026