Dreifð færsluskrá (e. distributed ledger) er skrá yfir færslur sem er ekki geymd á einum stað. Margar tölvur, svokallaðar nóðurNóðaTölva sem keyrir hugbúnað rafmyntanets, geymir afrit af bálkakeðjunni og athugar hvort nýjar færslur og bálkar standist reglurnar., geyma hver sitt eintak og fylgja sameiginlegum reglum til að koma sér saman um hvaða færslur eru gildar. Tæknin er oft kölluð DLT, sem stendur fyrir distributed ledger technology.
Hvernig virkar hún?
Hugsaðu þér hefðbundið bókhald fyrirtækis. Það er geymt hjá fyrirtækinu sjálfu og aðrir verða að treysta því að það sé rétt. Í dreifðri færsluskrá hafa allir þátttakendur sama bókhaldið. Þegar ný færsla bætist við uppfæra allir sitt eintak, og ef eintökum ber ekki saman skera sameiginlegu reglurnar úr um hvert þeirra gildir.
Í Evrópureglugerðinni MiCAMiCAReglugerð ESB um markaði fyrir sýndareignir, sem gildir á Íslandi frá 1. janúar 2026 og setur sömu reglur um rafmyntaþjónustu um allt EES. er dreifð færsluskrá skilgreind sem gagnasafn sem heldur skrá yfir færslur, sem er deilt á milli nóða og haldið samstilltu með samstöðuaðferð (e. consensus mechanism).
Dreifð færsluskrá og bálkakeðja
BálkakeðjaBálkakeðjaOpin færsluskrá þar sem færslur eru geymdar í bálkum og hver bálkur vísar í þann á undan, svo ekki er hægt að breyta eldri færslum án þess að það sjáist. er algengasta gerð dreifðrar færsluskrár, en ekki sú eina. Í bálkakeðju er færslunum raðað í bálkaBálkurHópur færslna sem bætist við bálkakeðjuna í einu lagi, ásamt tilvísun í bálkinn á undan. sem tengjast hver öðrum. Aðrar gerðir raða færslum á annan hátt. HederaHedera (HBAR)Netkerfi fyrir greiðslur, tóka og snjallsamninga sem byggir á hashgraph í stað bálkakeðju. Rafmynt þess heitir HBAR og ráð fyrirtækja stýrir því. notar til dæmis svokallað hashgraph í stað keðju af bálkum.
Dreifðar færsluskrár geta líka verið lokaðar. Þá ákveður hópur fyrirtækja, til dæmis banka, hverjir fá að taka þátt. Bitcoin og Ethereum eru aftur á móti opin öllum.
Af hverju skiptir þetta máli?
Þegar enginn einn aðili á frumritið getur enginn einn aðili breytt því eða eytt því. Þess vegna er hægt að eiga rafmynt án þess að banki haldi skrá yfir eignina.
Ritstjórn Myntkaupa skrifar allt efni Rafmyntaskólans og yfirfer það reglulega. Efnið er til fræðslu og er ekki fjárfestingarráðgjöf. Ritstjórnarstefna. Uppfært 18. október 2026.