Rafeyristóki (EMT)

Á enskue-money token (EMT)

Stöðugleikamynt sem fylgir einum opinberum gjaldmiðli, til dæmis dal eða evru. Samkvæmt MiCA mega aðeins bankar og rafeyrisfyrirtæki gefa hana út.

Rafeyristóki (e. e-money token, EMT) er sýndareignSýndareignLagahugtak yfir rafmyntir og tóka: stafræn framsetning á virði eða réttindum sem má millifæra og varðveita með bálkakeðjutækni. sem á að halda stöðugu virði með vísun í einn opinberan gjaldmiðil, til dæmis Bandaríkjadal eða evru. Hugtakið kemur úr Evrópureglugerðinni MiCAMiCAReglugerð ESB um markaði fyrir sýndareignir, sem gildir á Íslandi frá 1. janúar 2026 og setur sömu reglur um rafmyntaþjónustu um allt EES.. Samkvæmt henni teljast stöðugleikamyntirStöðugleikamyntRafmynt sem er hönnuð til að halda stöðugu verði, oftast með því að fylgja gengi Bandaríkjadals eða annars gjaldmiðils. sem fylgja einum gjaldmiðli rafeyristókar.

MiCA lítur á rafeyristóka sem rafeyri, sams konar fé og inneign á fyrirframgreiddu greiðslukorti. Munurinn er sá að rafeyristóki er skráður á bálkakeðju og hægt er að senda hann á milli veskja.

Hvaða reglur gilda?

Sérstakar reglur gilda um rafeyristóka samkvæmt MiCA. Þær helstu eru:

  • Starfsleyfi. Aðeins lánastofnanir og rafeyrisfyrirtæki mega bjóða rafeyristóka almenningi. Útgefandinn þarf líka að birta hvítbók um tókann.
  • Innlausn á nafnvirði. Útgefandinn gefur tókana út á nafnvirði gegn greiðslu. Eigandi getur hvenær sem er krafist innlausnar á nafnvirði, og fyrir innlausnina má ekki taka gjald.
  • Engir vextir. Hvorki útgefandinn né þjónustuveitendur sýndareignaCASP (þjónustuveitandi sýndareigna)Fyrirtæki með starfsleyfi samkvæmt MiCA til að veita þjónustu með sýndareignir, til dæmis kaup, sölu, vörslu eða millifærslur. mega greiða vexti af rafeyristókum.

Dæmi

USDCUSDCStöðugleikamynt frá bandaríska fyrirtækinu Circle sem fylgir Bandaríkjadal, þannig að eitt USDC á alltaf að vera um eins dollara virði., sem fylgir Bandaríkjadal, og EURC, sem fylgir evru, eru rafeyristókar. Innan Evrópusambandsins gefur franskt dótturfélag Circle þá út. Það fékk starfsleyfi sem rafeyrisfyrirtæki í júlí 2024.

ESMA, Evrópska verðbréfamarkaðseftirlitsstofnunin, heldur skrá yfir útgefendur rafeyristóka á EES-svæðinu. Þar er líka íslenska rafeyrisfyrirtækið Monerium, sem er undir eftirliti Seðlabanka Íslands, með evrutókann EURe.

Hvað er gott að vita?

Rafeyristóki er ekki innstæða í banka og engin innstæðutrygging fylgir honum. Innlausnarrétturinn er aðeins jafn traustur og útgefandinn og eignirnar sem standa á bak við tókana. Rafeyristóki sem fylgir dal er stöðugur í dölum en ekki í krónum.

Ritstjórn Myntkaupa skrifar allt efni Rafmyntaskólans og yfirfer það reglulega. Efnið er til fræðslu og er ekki fjárfestingarráðgjöf. Ritstjórnarstefna. Uppfært 18. október 2026.