Verð við þvingaða sölu

Á enskuliquidation price

Verðið á rafmynt þar sem veð er selt sjálfkrafa eða skuldsettri stöðu lokað. Því nær núverandi verði, því meiri er áhættan.

Verð við þvingaða sölu (e. liquidation price) er verðið á rafmynt þar sem þvinguð salaÞvinguð salaÞegar veð er selt sjálfkrafa upp í skuld, eða skuldsettri stöðu lokað, af því að veðið eða tryggingin dugar ekki lengur. hefst. Það á bæði við um lán með rafmynt að veði og um skuldsett viðskipti. Því nær sem það er núverandi verði, því minna þarf til að þú tapir.

Dæmi úr lánaþjónustu

Þú leggur 4 ether að veði þegar eitt ether kostar 2.500 Bandaríkjadali, samtals 10.000 dali. Þú tekur 6.000 dala lán í stöðugleikamynt og sölumörkin fyrir ether eru 80%. Health factorHealth factorTala sem sýnir hve vel veð dugar fyrir láni í DeFi. Ef hún fer undir 1 má selja hluta veðsins upp í skuldina. fer undir 1 þegar virði veðsins sinnum 0,80 verður lægra en skuldin:

Verð við þvingaða sölu = 6.000 ÷ (4 × 0,80) = 1.875 dalir

Ef ether fer niður fyrir 1.875 dali, sem er 25% lækkun, má hefja þvingaða sölu. Ef skuldin vex með vöxtum færist þetta verð nær núverandi verði.

Dæmi úr skuldsettum viðskiptum

Þú opnar skuldsettaSkuldsetningAð eiga viðskipti með lánsfé, sem margfaldar bæði hagnað og tap og getur þurrkað út allt framlagið á skömmum tíma. kaupstöðu upp á 10.000 dali með 1.000 dala tryggingu, sem er tíföld skuldsetning, þegar rafmyntin kostar 100 dali. Við 10% lækkun væri tryggingin öll farin. Kauphallir loka stöðunni þó fyrr, því þær krefjast lágmarkstryggingar (e. maintenance margin). Ef hún er 1% af virði stöðunnar lokast staðan þegar verðið fer niður í um 90,9 dali, eftir rúmlega 9% lækkun.

Hvað er gott að vita?

Verðið sem ræður er yfirleitt verð frá véfréttVéfréttÞjónusta sem færir upplýsingar utan bálkakeðjunnar, til dæmis gengi eða veðurgögn, inn í snjallsamninga. eða viðmiðunarverð kauphallarinnar (e. mark price), ekki endilega síðasta viðskiptaverð. Snögg verðdýfa getur því valdið lokun, jafnvel þótt verðið jafni sig fljótt.

Ritstjórn Myntkaupa skrifar allt efni Rafmyntaskólans og yfirfer það reglulega. Efnið er til fræðslu og er ekki fjárfestingarráðgjöf. Ritstjórnarstefna. Uppfært 18. október 2026.