Táknvæðing (e. tokenisation) er þegar eign utan bálkakeðjunnar er gefin út sem tókiTókiStafræn eign sem er búin til með snjallsamningi á bálkakeðju annarrar rafmyntar, í stað þess að hafa eigin bálkakeðju. á bálkakeðju. Tókinn stendur fyrir eignina, eða kröfu á hana, og hann má eiga og senda eins og aðra tóka. Slíkar eignir eru oft kallaðar RWA (e. real-world assets), það er eignir í raunheimum.
Dæmi um táknvæddar eignir
- Ríkisskuldabréf og sjóðir. Í mars 2024 setti eignastýringarfyrirtækið BlackRock á fót sjóðinn BUIDL á Ethereum. Hann fjárfestir einkum í reiðufé og skammtímaskuldabréfum bandaríska ríkisins, hlutir í honum eru gefnir út sem tókar og hann er ætlaður stórum fagfjárfestum.
- Gull. Til eru tókar þar sem hver tóki á að jafngilda einni únsu af gulli í hvelfingu.
- Fasteignir. Fasteign er skipt í marga tóka svo fleiri geti átt lítinn hlut í henni.
- Peningar. StöðugleikamyntirStöðugleikamyntRafmynt sem er hönnuð til að halda stöðugu verði, oftast með því að fylgja gengi Bandaríkjadals eða annars gjaldmiðils. eru í raun táknvæddir peningar: dollarar eða evrur í formi tóka.
Kostir og takmarkanir
Táknvæddar eignir má senda á öllum tímum sólarhringsins, uppgjör getur tekið mínútur í stað daga og eignunum má skipta í smærri einingar. Þær má líka nota í DeFiDeFi (dreifstýrð fjármál)Fjármálaþjónusta, eins og lán, sparnaður og viðskipti, sem keyrir á snjallsamningum á bálkakeðju í stað banka eða annarra milliliða., til dæmis sem veð.
Tókinn er þó aldrei traustari en útgefandinn. Eignin sjálf er ekki á bálkakeðjunni heldur í vörslu útgefandans eða vörsluaðila. Ef hann bregst, eða ef lagalegur réttur þinn til eignarinnar er óljós, getur tókinn verið lítils virði þótt eignin sé til.
Hvaða reglur gilda?
Ef tóki veitir sömu réttindi og hlutabréf, skuldabréf eða hlutdeild í sjóði telst hann fjármálagerningur. Þá gilda um hann reglur ESB um verðbréfamarkaði (MiFID II), en ekki MiCAMiCAReglugerð ESB um markaði fyrir sýndareignir, sem gildir á Íslandi frá 1. janúar 2026 og setur sömu reglur um rafmyntaþjónustu um allt EES.. Hér á landi eru þær reglur í lögum nr. 115/2021 um markaði fyrir fjármálagerninga. Samkvæmt leiðbeiningum ESMA breytir tæknin ekki flokkuninni. MiCA nær hins vegar yfir aðrar sýndareignirSýndareignLagahugtak yfir rafmyntir og tóka: stafræn framsetning á virði eða réttindum sem má millifæra og varðveita með bálkakeðjutækni., til dæmis stöðugleikamyntir.
Ritstjórn Myntkaupa skrifar allt efni Rafmyntaskólans og yfirfer það reglulega. Efnið er til fræðslu og er ekki fjárfestingarráðgjöf. Ritstjórnarstefna. Uppfært 18. október 2026.