Tvíþætt auðkenning (e. two-factor authentication, 2FA) þýðir að þú þarft tvær ólíkar sannanir á því hver þú ert til að skrá þig inn. Yfirleitt er það eitthvað sem þú veist, eins og lykilorð, og eitthvað sem þú hefur, eins og síminn þinn. Þótt einhver steli lykilorðinu kemst sá ekki inn án seinni þáttarins.
Hvernig virkar tvíþætt auðkenning?
Þú þekkir þetta úr daglegu lífi. Til að taka út í hraðbanka þarftu bæði kortið og PIN-númerið. Rafræn skilríki í símanum byggja á sömu hugmynd: síminn og PIN-númerið saman.
Algengustu gerðirnar, frá þeirri veikustu til þeirrar sterkustu:
- Kóði í SMS. Betra en ekkert, en hægt er að ná símanúmerinu af þér með SIM-skiptumSIM-skiptiÞegar svikahrappur lætur flytja símanúmerið þitt yfir á nýtt SIM-kort til að fá SMS-kóðana þína og komast inn á reikningana þína..
- Auðkenningarapp, eins og Google Authenticator eða Microsoft Authenticator, sem býr til nýjan sex stafa kóða, oftast á 30 sekúndna fresti.
- Öryggislykill eða passkey, lítið tæki eða innskráning sem er innbyggð í símann. Þetta er sterkasta leiðin, því hún virkar ekki á falsaðri vefsíðu.
Af hverju skiptir hún máli?
Reikningur hjá rafmyntamiðlunRafmyntamiðlunFyrirtæki eða vettvangur þar sem þú kaupir, selur og skiptir rafmyntum, til dæmis fyrir krónur. er freistandi skotmark. Sá sem kemst inn getur reynt að senda rafmyntina burt, og rafmyntafærslur verða ekki afturkallaðar.
Tvíþætt auðkenning ver þig þó ekki gegn öllu. Svikahrappar reyna oft að fá kóðann hjá þér með vefveiðumVefveiðarSvik þar sem svikahrappar þykjast vera traust fyrirtæki eða stofnun til að fá þig til að gefa upp lykilorð, kortaupplýsingar eða endurheimtarorð. eða í símtali. Gefðu aldrei neinum kóða sem þú færð, og samþykktu aldrei innskráningu eða beiðni um rafræn skilríki sem þú baðst ekki um.
Ritstjórn Myntkaupa skrifar allt efni Rafmyntaskólans og yfirfer það reglulega. Efnið er til fræðslu og er ekki fjárfestingarráðgjöf. Ritstjórnarstefna. Uppfært 18. október 2026.