USDC

Stöðugleikamynt frá bandaríska fyrirtækinu Circle sem fylgir Bandaríkjadal, þannig að eitt USDC á alltaf að vera um eins dollara virði.

USDC (USD Coin) er stöðugleikamyntStöðugleikamyntRafmynt sem er hönnuð til að halda stöðugu verði, oftast með því að fylgja gengi Bandaríkjadals eða annars gjaldmiðils. sem bandaríska fyrirtækið Circle gefur út. Eitt USDC á að jafngilda einum Bandaríkjadal, og Circle lofar að innleysa hvert USDC fyrir einn dollara. Í október 2026 var USDC næststærsta stöðugleikamynt heims, á eftir USDT.

Hvernig virkar USDC?

Á móti hverju USDC á Circle eignir í varasjóði. Þær eru að mestu í peningamarkaðssjóði sem fjárfestir í ríkisskuldabréfum Bandaríkjanna til skamms tíma, auk reiðufjár í bönkum. Endurskoðunarfyrirtæki staðfestir stöðu varasjóðsins í hverjum mánuði og niðurstöðurnar eru birtar opinberlega.

USDC er til á tugum bálkakeðjaBálkakeðjaOpin færsluskrá þar sem færslur eru geymdar í bálkum og hver bálkur vísar í þann á undan, svo ekki er hægt að breyta eldri færslum án þess að það sjáist., til dæmis Ethereum og Solana. Á hverju neti er það tókiTókiStafræn eign sem er búin til með snjallsamningi á bálkakeðju annarrar rafmyntar, í stað þess að hafa eigin bálkakeðju. sem snjallsamningur heldur utan um.

Í júlí 2024 fékk Circle starfsleyfi sem rafeyrisfyrirtæki í Frakklandi. Circle segir að síðan þá sé USDC gefið út í samræmi við MiCAMiCAReglugerð ESB um markaði fyrir sýndareignir, sem gildir á Íslandi frá 1. janúar 2026 og setur sömu reglur um rafmyntaþjónustu um allt EES., sem gildir líka á Íslandi.

USDC hjá Myntkaupum

USDC er grunngjaldmiðill reikninga hjá Myntkaupum. Ekki er hægt að leggja USDC inn eða taka það út á bálkakeðju hjá Myntkaupum.

Hvað er gott að vita?

USDC er ekki innstæða í banka og engin innstæðutrygging fylgir því. Verðið getur líka vikið frá einum dollara. Í mars 2023 kom í ljós að 3,3 milljarðar dollara af varasjóðnum sátu fastir í Silicon Valley Bank, sem var þá fallinn. USDC fór um tíma undir 0,90 dollara en náði aftur jafngildi við dollarann nokkrum dögum síðar.

Ritstjórn Myntkaupa skrifar allt efni Rafmyntaskólans og yfirfer það reglulega. Efnið er til fræðslu og er ekki fjárfestingarráðgjöf. Ritstjórnarstefna. Uppfært 18. október 2026.