Um okkur

Myntkaup var stofnað snemma árs 2019 og hóf starfsemi í maí 2020.

Myntkaup teymið

Saga félagsins og markmið

Myntkaup var stofnað snemma árs 2019 og hóf starfsemi í maí 2020. Markmið stofnenda Myntkaupa er að bjóða Íslendingum upp á einfalda og örugga leið til þess að stunda viðskipti með Bitcoin og aðrar rafmyntir. Við viljum stuðla að því að Íslendingar tileinki sér rafmynta- og bálkakeðjutæknina svo við verðum ekki eftirbátar annarra þjóða í þessum efnum.

Viðskiptavinir nýskrá sig með rafrænum skilríkjum og leggja inn krónur með bankamillifærslu. Innborganir eru yfirleitt komnar inn innan nokkurra mínútna, alla daga ársins, og í Myntkaup appinu getur þú keypt rafmyntir hvenær sem er sólarhringsins.

Myntkaup ehf. fékk starfsleyfi sem þjónustuveitandi sýndareigna (CASP) samkvæmt MiCA frá Seðlabanka Íslands 25. júní 2026. Nánar á síðunni Starfsleyfi og öryggi.

Samkvæmt Nordic Crypto Adoption Survey 2025 frá K33 Research og Nordic Blockchain Association (28. mars 2025) nota 30,6% íslenskra rafmyntaeigenda Myntkaup til að kaupa og selja rafmyntir, fleiri en Coinbase (26,4%) og Binance (20,8%).

25.000+

Fjöldi skráðra viðskiptavina

400+

Fjöldi fyrirtækja í viðskiptum

~6,8%

Hlutfall lögráða Íslendinga á Myntkaup

62ma+

Heildarvelta frá upphafi

Teymið

Patrekur Maron Magnússon

Patrekur Maron Magnússon

Framkvæmdastjóri

Patrekur er tölvunarfræðingur að mennt sem hefur mikinn áhuga á Bitcoin og bálkakeðjum. Patrekur stofnaði Myntkaup vegna þess að honum fannst vanta samastað fyrir Íslendinga til þess að geta fræðst um og stundað viðskipti með bitcoin og aðrar rafmyntir.

Kjartan Ragnars

Kjartan Ragnars

Regluvörður

Kjartan er lögfræðingur og hefur tekið þátt í starfi Myntkaupa allt frá upphafi. Hann situr í stjórn félagsins og er einn af hluthöfum þess. Kjartan hefur umtalsverða reynslu af því að fjalla um Bitcoin á opinberum vettvangi, einkum í útvarpsviðtölum og hlaðvarpsþáttum.

Magnús Kristinn Jónsson

Magnús Kristinn Jónsson

Fjármálastjóri

Magnús er verkfræðingur með yfir 15 ára reynslu úr fjármálageiranum á sviði áhættu- og eignastýringar. Hann vann við áhættustýringu í Búnaðarbankanum og Kaupþingi og tók síðan við sem forstöðumaður áhættustýringar hjá Sparisjóðabankanum (Icebank). Hann starfaði síðan fyrir skilanefnd og slitastjórn bankans eftir að bankinn fór í slitameðferð við eignaumsýslu eigna bankans og bar ábyrgð á fjárstýringu þrotabúsins ásamt öðrum verkefnum.

Garðar Karl Ólafsson

Garðar Karl Ólafsson

Yfirmaður viðskiptaþróunar

Garðar er er viðskiptafræðingur með meistaragráðu í fjármálum fyrirtækja og er auk þess með próf í verðbréfaviðskiptum og diplóma í alþjóðasamskiptum. Garðar hefur víðtæka reynslu af störfum á fjármálamarkaði ásamt verkefnum í fjártækni og ráðgjöf.

Sigurður Kári Árnason

Sigurður Kári Árnason

Tæknistjóri

Sigurður er stærðfræðingur sem hefur starfað við hugbúnaðarþróun í yfir áratug. Áður en hann kom til Myntkaupa vann Sigurður sem forritari og hefur hann í starfi sínu sinnt hönnun og útfærslu á verkefnum í bakenda, framenda og innviðum hjá tæknifyrirtækjunum TripAdvisor, Controlant og Bókun.

phone icon

Sæktu Myntkaup appið í dag

Með Myntkaup appinu geturðu keypt og selt Bitcoin, Ethereum, Solana, XRP og fleiri rafmyntir. Þú getur fylgst með gengi og eignastöðu í rauntíma á einfaldan hátt.

Hönd sem heldur á síma og sýnir appið