Algengar spurningar
Finnur þú ekki svarið sem þú ert að leita að? Þú getur líka skoðað hjálparborðið okkar eða sent okkur póst á myntkaup@myntkaup.is.
Upplýsingar um starfsleyfi og vörslu eigna eru á síðunni Starfsleyfi og öryggi og yfirlit yfir gjöld á síðunni Kostnaður.
Hvað er Myntkaup?
Myntkaup er íslenskur rafmyntaskiptimarkaður með starfsleyfi frá Seðlabanka Íslands og yfir 25.000 skráða viðskiptavini. Hjá Myntkaupum getur þú lagt inn krónur, keypt og selt bitcoin, ether og aðrar rafmyntir, tekið rafmyntir út á eigið veski eða selt og fengið greitt inn á íslenskan bankareikning.
Samkvæmt Nordic Crypto Adoption Survey 2025 nota 30,6% íslenskra rafmyntaeigenda Myntkaup til að kaupa og selja rafmyntir.
Hvernig legg ég pening inn á reikninginn minn?
Þú getur lagt inn með þremur leiðum:
Bankamillifærsla. Þú millifærir af hvaða íslenska bankareikningi sem er inn á reikning 0301-26-027012, kt. 520717-0800. Kerfið okkar athugar nýjar innborganir á nokkurra mínútna fresti alla daga ársins og þær eru yfirleitt komnar inn á reikninginn þinn innan nokkurra mínútna, líka á kvöldin og um helgar. Í undantekningartilvikum, til dæmis ef bilun verður hjá banka eða álag er óvenju mikið, getur það tekið lengri tíma. Bankainnborganir eru gjaldfrjálsar.
Krónunum er sjálfkrafa breytt í USDC á almennu sölugengi Arion banka á USD, án álags. Um helgar og á frídögum er notað gengi síðasta bankadags. Nánar á síðunni Kostnaður.
Blikk eða Netgíró. Innborganir með Blikk og Netgíró eru afgreiddar strax, hvenær sem er sólarhringsins. Fyrir þær er tekið þjónustugjald samkvæmt gjaldskrá.
Rafmyntainnborgun. Þú getur lagt inn rafmynt á innborgunarfangið sem þú finnur undir innborgunum í appinu eða á vefnum. Rafmyntainnborganir eru gjaldfrjálsar og hægt er að leggja inn allar studdar rafmyntir nema USDC á upprunaneti þeirra. Hversu langan tíma staðfesting tekur fer eftir bálkakeðjunni. Nánar má lesa um rafmyntainnborganir hér.
Eruð þið með app?
Já, Myntkaup appið er mjög vinsælt á meðal viðskiptavina en þú getur sótt það með því að opna App Store/Play Store og leita að Myntkaup. Einnig finnurðu beinan hlekk á appið með því að smella hér.
Hvaða rafmyntir bjóðið þið upp á?
Sem stendur bjóðum við upp á Bitcoin (BTC), Ethereum (ETH), Solana (SOL), Avalanche (AVAX), Cardano (ADA), XRP, Polkadot (DOT), Sui (SUI), Shiba Inu (SHIB), Dogecoin (DOGE), Chainlink (LINK), Hedera (HBAR) og USDC.
Allar rafmyntirnar nema USDC er hægt að leggja inn og taka út á eigið veski á grunnneti viðkomandi myntar. USDC er ekki hægt að leggja inn eða taka út á bálkakeðju eins og er.
Er Myntkaup alltaf opið? Get ég alltaf lagt inn pening og stundað viðskipti?
Myntkaup er starfrækt allan sólarhringinn, alla daga ársins, alltaf. Kaup og sala eru sjálfvirk ferli. Sömuleiðis rafmyntainnborganir og innborganir með Blikk & Netgíró. Bankaúttektir og rafmyntaúttektir eru afgreiddar með samþykki starfsmanns af öryggisástæðum og þurfa því viðskiptavinir stundum að þola smávegis bið ef beðið er um bankaúttekt eða rafmyntaúttekt utan þjónustutímans (09:00-23:59).
Er Myntkaup öruggt?
Myntkaup ehf. er með starfsleyfi frá Seðlabanka Íslands sem þjónustuveitandi sýndareigna (CASP) samkvæmt MiCA og er undir eftirliti Seðlabankans. Myntkaup hefur verið starfrækt frá 11. maí 2020 og yfir 25.000 viðskiptavinir eru skráðir hjá okkur.
Eignir viðskiptavina eru lagalega aðskildar frá eignum Myntkaupa og eru varðar fyrir kröfum lánadrottna ef félagið yrði gjaldþrota. Við lánum aldrei eignir viðskiptavina né notum þær í eigin fjárfestingar. Rafmyntir eru varðveittar með Multi-Party Computation (MPC) frá Fireblocks og verulegur hluti þeirra er í vörslu Coinbase í Lúxemborg og Kraken á Írlandi, sem báðir eru með starfsleyfi innan ESB.
Nánar á síðunni Starfsleyfi og öryggi.
Hvernig tek ég pening út af Myntkaup reikningnum mínum?
Þú getur tekið rafmyntir út af Myntkaupsreikningi og fært þær yfir á annað rafmyntaveski, hvort sem það er eigið veski eða veski á öðrum vettvangi. Þetta gildir um allar studdar rafmyntir nema USDC. Smelltu á úttekt, veldu rafmyntina og sláðu inn fangið (e. address) sem taka á út á. Gakktu úr skugga um að fangið sé rétt, því millifærslur á bálkakeðjum eru óafturkræfar. Eftir að þú biður um úttekt þarftu að staðfesta hana með PIN-númerinu þínu í appinu og í tölvupósti.
Ef þú vilt fá krónur inn á bankareikning selur þú rafmyntina og biður um bankaúttekt (sjá spurninguna um bankaúttektir hér fyrir neðan). Sjá nánar hjálpargrein um rafmyntaúttektir.
Telur Myntkaup sjálfkrafa fram á skattframtali fyrir mig?
Eignastaða þín hjá Myntkaupum í árslok er forskráð á skattframtalið. Kaup og sölur eru hins vegar ekki forskráðar og þú berð ábyrgð á að telja þær fram.
Þú getur sótt færslusögu og árslokayfirlit sem CSV eða PDF í vefappinu undir Færslur → Hlaða niður yfirliti, eða sent póst á myntkaup@myntkaup.is og við sendum þér gögnin. Myntkaup veitir ekki skattaráðgjöf, svo leitaðu til endurskoðanda eða Skattsins ef þú þarft aðstoð við framtalið.
Ef ég á rafmyntir inni á Myntkaupum og vil fá íslenskar krónur inn á bankareikning, hvernig geri ég það?
Þegar þú selur rafmynt færðu USDC inn á reikninginn þinn. Þú getur geymt USDC, notað það til að kaupa aftur eða beðið um bankaúttekt undir Úttekt ⇾ Bankaúttekt og slegið inn bankanúmer, höfuðbók og reikningsnúmer.
Fyrir bankaúttekt er tekið fast 7 USDC gjald og USDC er umreiknað í krónur á almennu kaupgengi Arion banka á USD, án álags. Um helgar og á frídögum er notað gengi síðasta bankadags. Bankaúttektir eru afgreiddar alla daga og berast yfirleitt samdægurs, oft innan nokkurra klukkustunda.
Sjá nánar hjálpargrein um bankaúttektir og dæmi á síðunni Kostnaður.
Hvað er Bitcoin?
Á Myntkaupsblogginu er að finna ýmsan fróðleik tengdan rafmyntum. Vinsælasta greinin frá upphafi er greinin Hvað er Bitcoin?. Í henni er svarað á ítarlegan og skiljanlegan hátt hvað Bitcoin er.
Sjá eftirfarandi hlekk: blogg.myntkaup.is/hvad-er-bitcoin/
Hvar sé ég hvaða þóknun er tekin af viðskiptum?
Fyrir kaup og sölu rafmynta er tekinn 1,99% gengismunur. Þegar þú kaupir er verðið í tilboðinu 1,99% yfir markaðsverði og þegar þú selur 1,99% undir því. Gengismunurinn er innifalinn í tilboðinu sem þú sérð áður en þú staðfestir og engin önnur þóknun er tekin af viðskiptunum.
Bankainnborganir eru gjaldfrjálsar, bankaúttekt kostar 7 USDC og fyrir rafmyntaúttektir er greitt netgjald. Öll gjöld eru í gjaldskrá Myntkaupa og dæmi um heildarkostnað er á síðunni Kostnaður.
Fyrir aðila sem hyggjast stunda viðskipti fyrir háar fjárhæðir þá er hægt að senda okkur póst á myntkaup@myntkaup.is og við getum oft boðið betri kjör byggða á væntri viðskiptaveltu.
Eru falin gjöld á Myntkaupum?
Engin falin gjöld eru hjá Myntkaupum. Öll gjöld eru í gjaldskrá Myntkaupa. Þóknun fyrir kaup og sölu er 1,99% gengismunur sem er innifalinn í verðinu sem þú sérð, og engin viðbótarþóknun er tekin.
Á erlendum rafmyntamörkuðum er algengt að fólk leggi inn með greiðslukorti og að slíkum innborgunum fylgi um 3–10% kostnaður, eftir því hvaða vettvangur á í hlut. Bankainnborganir í krónum hjá Myntkaupum eru gjaldfrjálsar.
Af hverju ætti ég að skipta við Myntkaup frekar en erlendar kauphallir?
Hjá Myntkaupum leggur þú inn íslenskar krónur með venjulegri bankamillifærslu, án innborgunargjalds og á almennu gengi bankans án álags. Innborganir eru yfirleitt komnar inn innan nokkurra mínútna, alla daga ársins.
Á erlendum rafmyntamörkuðum leggja flestir inn með greiðslukorti og slíkum innborgunum fylgir oft um 3–10% kostnaður, eftir því hvaða vettvangur á í hlut. Myntkaup er íslenskt félag með starfsleyfi frá Seðlabanka Íslands og þú færð aðstoð á íslensku í tölvupósti, eða í síma ef þú biður um símtal.
Margir sem eiga líka viðskipti á erlendum mörkuðum nota Myntkaup til að breyta krónum í rafmyntir og færa þær síðan á eigið veski eða annan vettvang.
Er Myntkaup eftirlitsskyld starfsemi?
Já. Myntkaup ehf. fékk starfsleyfi sem þjónustuveitandi sýndareigna (CASP) samkvæmt MiCA frá Seðlabanka Íslands 25. júní 2026 og er undir eftirliti Seðlabankans. Leyfið nær til vörslu og umsýslu sýndareigna fyrir hönd viðskiptavina, skipta á sýndareignum fyrir fjármuni, skipta á sýndareignum fyrir aðrar sýndareignir og millifærsluþjónustu fyrir sýndareignir.
Í október 2026 er Myntkaup eini aðilinn á skrá Seðlabankans yfir þjónustuveitendur sýndareigna. Sjá einnig tilkynningu Seðlabankans.
Hvað er kalt veski og hvernig færi ég rafmyntir frá Myntkaupum yfir á kalt veski?
Kalt veski er veski sem ekki er tengt internetinu, ólíkt heitu veski. Vinsælustu köldu veskin eru Ledger og Trezor. Enginn nema eigandi veskisins getur komist í eignir þess, að því gefnu að aðgangsupplýsingar séu ekki sýnilegar öðrum.
Til að taka út á kalt veski biður þú einfaldlega um rafmyntaúttekt á fang veskisins. Þetta á við um allar studdar rafmyntir nema USDC.
Ég hyggst stunda viðskipti fyrir miklar fjárhæðir. Get ég fengið betri kjör en samkvæmt gjaldskrá?
Fyrir þá viðskiptavini sem hyggjast stunda viðskipti með miklar fjárhæðir bendum við á að hafa samband á myntkaup@myntkaup.is.
Hver getur stofnað reikning hjá Myntkaupum?
Til að skrá þig þarftu að vera með íslenska kennitölu og rafræn skilríki eða Auðkennisappið.
Hvað gerist ef ég týni símanum eða kemst ekki inn?
Þú skráir þig inn hjá Myntkaupum með rafrænum skilríkjum eða Auðkennisappinu. Ef þú týnir símanum færðu þér nýjan síma og setur upp rafræn skilríki eða Auðkennisappið aftur hjá Auðkenni. Auðkenni er í eigu íslenska ríkisins.
Þú tapar ekki eignunum þínum. Þær eru tengdar kennitölunni þinni og þegar skilríkin eru komin upp aftur geturðu skráð þig inn eins og áður. Þú geymir enga einkalykla hjá Myntkaupum, svo þú getur ekki týnt lykli að eignunum.
Ef þú þarft aðstoð geturðu sent póst á myntkaup@myntkaup.is.
Hvernig fæ ég yfirlit yfir viðskiptin mín?
Í vefappinu ferðu í Færslur → Hlaða niður yfirliti og sækir færslusögu og árslokayfirlit sem CSV eða PDF. Þú getur líka sent póst á myntkaup@myntkaup.is og við sendum þér yfirlitin.
Bjóðið þið upp á reglubundin kaup?
Ekki enn. Reglubundin (sjálfvirk) kaup eru á stefnuskránni okkar en eru ekki í boði eins og er. Þangað til getur þú keypt hvenær sem er í appinu eða á vefnum.
Hvað gerist með rafmyntir þegar eigandi reiknings fellur frá?
Erfingjar hafa samband í tölvupósti á myntkaup@myntkaup.is eða í gegnum þetta form.
Sá sem hefur umboð til að ganga frá dánarbúinu leggur fram staðfestingu frá sýslumanni um leyfi til einkaskipta og umboð til að skipta búinu. Viðkomandi getur valið hvort eignirnar verði seldar og greiddar út í krónum inn á bankareikning dánarbúsins eða millifærðar. Afgreiðsla tekur yfirleitt nokkra daga.
Hvernig hef ég samband við Myntkaup?
Best er að senda póst á myntkaup@myntkaup.is eða nota hafðu samband-formið. Ef þú vilt frekar ræða málin í síma geturðu beðið um símtal og við hringjum í þig, yfirleitt innan 48 klukkustunda og oft fyrr.
Síðast yfirfarið: 18. október 2026