Bittensor er opið net, með eigin bálkakeðju, þar sem þátttakendur um allan heim keppa um að skila vinnu á sviði gervigreindar. Þeir sem skila bestu vinnunni fá umbun í TAO, rafmynt netsins. Bittensor er oft nefnt sem helsta dæmið um dreifstýrða gervigreindDreifstýrð gervigreindGervigreind sem er þróuð, keyrð eða seld á opnum netum, í stað þess að vera í höndum fárra fyrirtækja. Bittensor og NEAR eru dæmi..
Hvernig virkar Bittensor?
Netið skiptist í allt að 128 undirnetUndirnet (subnet)Sjálfstæður hluti af stærra neti með eigin reglur og verkefni. Í Bittensor er hvert undirnet markaður fyrir eina tegund gervigreindarvinnu., og hvert þeirra er markaður fyrir eina tegund vinnu, til dæmis keyrslu gervigreindarlíkana eða reiknigetu. Í hverju undirneti vinna svokallaðir námuvinnsluaðilar (e. miners) verkið og staðfestingaraðilarStaðfestingaraðiliÞátttakandi á neti sem notar proof of stake og leggur eigin rafmynt að veði til að búa til og staðfesta bálka gegn umbun. gefa vinnunni einkunn. Einkunnirnar ráða því hvernig umbunin skiptist.
Jacob Steeves og Ala Shaabana stofnuðu Bittensor, og núverandi aðalnet hefur keyrt frá mars 2023.
TAO
Aldrei verða til fleiri en 21 milljón TAO, sama hámarksframboðHámarksframboðMesti fjöldi eininga sem getur nokkurn tímann orðið til af tiltekinni rafmynt samkvæmt reglum hennar, til dæmis 21 milljón bitcoin. og hjá bitcoin, og engum var úthlutað myntum fyrir fram. Útgáfan var helminguðHelmingunAtburður á um fjögurra ára fresti þar sem fjöldi nýrra bitcoin sem námuvinnsluaðilar fá fyrir hvern bálk lækkar um helming. í fyrsta sinn 15. desember 2025. TAO er líka hægt að leggja að veði, í StakingStakingAð leggja rafmynt að veði á neti sem notar proof of stake, til að taka þátt í að staðfesta færslur gegn umbun í sömu rafmynt., og fá hlut í umbuninni.
Hvað er gott að vita?
Reglur netsins eru flóknar og breytast reglulega. Stór hluti þess TAO sem lagt er að veði er hjá fáum staðfestingaraðilum. Verð TAO sveiflast mikið.
Ritstjórn Myntkaupa skrifar allt efni Rafmyntaskólans og yfirfer það reglulega. Efnið er til fræðslu og er ekki fjárfestingarráðgjöf. Ritstjórnarstefna. Uppfært 4. nóvember 2026.