Færslugjald (e. network fee) er gjaldið sem fylgir hverri færslu á bálkakeðju. Á Bitcoin-netinu rennur það til námuvinnsluaðila sem búa til nýja bálka. Á Ethereum-netinu skiptist það í tvennt: grunngjaldinu er eytt, en staðfestingaraðilar (e. validators) fá þjórféð sem greitt er ofan á. Færslugjaldið er greitt netinu sjálfu, ekki banka eða fyrirtæki.
Hvað ræður upphæðinni?
Pláss í hverjum bálkiBálkurHópur færslna sem bætist við bálkakeðjuna í einu lagi, ásamt tilvísun í bálkinn á undan. er takmarkað. Þegar margir vilja senda á sama tíma bjóða þeir í plássið og gjöldin hækka. Þegar rólegt er lækka þau aftur. Þetta minnir á uppboð þar sem hæstu boðin komast fyrst að.
Upphæðin sem þú sendir skiptir yfirleitt engu máli. Á Bitcoin-netinu fer gjaldið eftir stærð færslunnar í bætum og er gefið upp í Satoshi (sats)Satoshi (sats)Minnsta eining bitcoin: eitt satoshi er hundraðmilljónasti hluti úr einu bitcoin, eða 0,00000001 bitcoin. á hvert sýndarbæti (sat/vB). Á Ethereum-netinu er það reiknað í gasiGasMælieining á Ethereum-netinu fyrir þá reiknivinnu sem færsla eða snjallsamningur krefst, og ræður því hve hátt færslugjaldið verður.. Það kostar því jafn mikið að senda 1.000 krónur og 1 milljón króna, ef færslurnar eru jafn stórar.
Dæmi
Gjöldin geta sveiflast mikið. Þegar helmingunHelmingunAtburður á um fjögurra ára fresti þar sem fjöldi nýrra bitcoin sem námuvinnsluaðilar fá fyrir hvern bálk lækkar um helming. Bitcoin varð 20. apríl 2024 kepptust óvenju margir um að komast í bálk númer 840.000, bálkinn þar sem helmingunin tók gildi. Færslugjöldin í þessum eina bálki voru samtals um 37,6 bitcoin, um tólf sinnum meira en þau 3,125 nýju bitcoin sem urðu til í bálkinum. Á venjulegum degi eru gjöldin aðeins brot af því.
Hvað er gott að vita?
Þegar þú tekur rafmynt út af rafmyntamiðlun og sendir á eigið veski greiðir þú yfirleitt færslugjald. Ef þú stillir gjaldið of lágt í eigin veski getur færslan setið óstaðfest lengi.
Ritstjórn Myntkaupa skrifar allt efni Rafmyntaskólans og yfirfer það reglulega. Efnið er til fræðslu og er ekki fjárfestingarráðgjöf. Ritstjórnarstefna. Uppfært 18. október 2026.