Heildarframboð

Á enskutotal supply

Fjöldi eininga rafmyntar sem eru þegar til, hvort sem þær eru komnar í umferð eða eru enn læstar, að frádregnum þeim sem hefur verið eytt.

Heildarframboð (e. total supply) er fjöldi þeirra eininga af rafmynt sem hafa þegar verið búnar til, að frádregnum þeim sem hefur verið eytt. Talan nær líka yfir einingar sem eru til en eru læstar og ekki komnar á markað.

Þrjár tölur um framboð

  • HámarksframboðHámarksframboðMesti fjöldi eininga sem getur nokkurn tímann orðið til af tiltekinni rafmynt samkvæmt reglum hennar, til dæmis 21 milljón bitcoin. er mesti fjöldi eininga sem getur nokkurn tímann orðið til.
  • Heildarframboð er fjöldi eininga sem eru til í dag.
  • Framboð í umferðFramboð í umferðFjöldi eininga af rafmynt sem eru þegar til og í höndum eigenda, notaður til að reikna út markaðsvirði hennar. er sá hluti heildarframboðsins sem er í höndum eigenda og gengur kaupum og sölum.

Hugsaðu þér upplag bókar. Hámarksframboð er það sem forlagið má prenta, heildarframboð það sem búið er að prenta og framboð í umferð það sem er komið í búðir.

Dæmi

  • Bitcoin. Hámarkið er 21 milljón. Í október 2026 voru rúmlega 20,1 milljón bitcoin til, og þau teljast öll í umferð. Heildarframboð og framboð í umferð eru því sama talan.
  • XRP. Hámarkið er 100 milljarðar, og þær einingar voru allar búnar til í upphafi. Heildarframboðið er samt rétt undir 100 milljörðum, því örlitlu af XRP er eytt í hverri færslu. Í október 2026 voru um 63 milljarðar í umferð, og stór hluti afgangsins er læstur.
  • Ether. Ekkert hámark er á Ether (ETH)Ether (ETH)Rafmynt Ethereum-netsins, notuð til að greiða færslugjöld, sem veð við staðfestingu bálka og til að senda verðmæti á milli fólks.. Heildarframboðið vex þegar nýtt ether verður til og minnkar þegar hluti færslugjalda er brenndur.

Af hverju skiptir það máli?

Munurinn á heildarframboði og framboði í umferð sýnir hve margar einingar eru til en bíða þess að fara á markað, til dæmis hjá stofnendum, fjárfestum eða í sjóði verkefnisins. Þegar þær losna eykst framboðið í umferð, og það getur þrýst verðinu niður. Þetta er hluti af tókenomíkTókenomíkReglurnar um framboð, útgáfu og dreifingu rafmyntar eða tóka, og til hvers hann er notaður. myntarinnar.

Verðsíður nota ekki alltaf sömu skilgreiningar, svo tölurnar geta verið aðeins mismunandi eftir síðum.

Ritstjórn Myntkaupa skrifar allt efni Rafmyntaskólans og yfirfer það reglulega. Efnið er til fræðslu og er ekki fjárfestingarráðgjöf. Ritstjórnarstefna. Uppfært 18. október 2026.