Liquid staking er leið til að leggja rafmynt að veði, það er StakingStakingAð leggja rafmynt að veði á neti sem notar proof of stake, til að taka þátt í að staðfesta færslur gegn umbun í sömu rafmynt., og fá í staðinn tóka sem hægt er að nota áfram. Tókinn er eins konar kvittun fyrir veðinu og umbuninni sem því fylgir. Hann má selja, senda eða nota í DeFiDeFi (dreifstýrð fjármál)Fjármálaþjónusta, eins og lán, sparnaður og viðskipti, sem keyrir á snjallsamningum á bálkakeðju í stað banka eða annarra milliliða. á meðan rafmyntin sjálf er bundin.
Hvernig virkar liquid staking?
Rafmynt sem lögð er að veði er yfirleitt bundin, og á Ethereum þarf að bíða í röð til að fá hana lausa. Liquid staking-þjónusta tekur við rafmyntinni, dreifir henni á staðfestingaraðilaStaðfestingaraðiliÞátttakandi á neti sem notar proof of stake og leggur eigin rafmynt að veði til að búa til og staðfesta bálka gegn umbun. og gefur út tóka á móti.
Þekktasta dæmið er Lido á Ethereum, sem fór í gang í desember 2020. Sá sem leggur ether inn hjá Lido fær tókann stETH í hlutfallinu 1:1. Inneignin í stETH hækkar svo daglega eftir því sem umbunin safnast upp. Samkvæmt ethereum.org (í október 2026) liggur um þriðjungur alls ether sem lagt hefur verið að veði á bak við slíka tóka.
Þetta minnir á innlánsskírteini: peningarnir eru bundnir í ákveðinn tíma, en skírteinið sjálft má selja öðrum.
Hver er áhættan?
- Tókinn getur fallið undir virði veðsins. Verð tókans ræðst á markaði. Í júní 2022, þegar ekki var enn hægt að taka veðsett ether út, seldist stETH um tíma með nokkurra prósenta afslætti miðað við ether.
- Snjallsamningar. Rafmyntin liggur í snjallsamningumSnjallsamningurForrit á bálkakeðju sem keyrir sjálfkrafa þegar tiltekin skilyrði eru uppfyllt og gerir nákvæmlega það sem það var forritað til að gera. sem gætu verið með villur.
- Refsingar. Ef staðfestingaraðili sem þjónustan notar verður fyrir SlashingSlashingRefsing á netum sem nota proof of stake. Staðfestingaraðili sem brýtur reglurnar missir hluta af veðinu sínu og er vikið af netinu. skiptist tapið yfirleitt á alla eigendur tókans.
- Samþjöppun. Ef ein þjónusta ræður yfir stórum hluta alls veðsins safnast mikið vald á fáar hendur. Ethereum.org varar við því að slíkt geti auðveldað ritskoðun á netinu.
Ritstjórn Myntkaupa skrifar allt efni Rafmyntaskólans og yfirfer það reglulega. Efnið er til fræðslu og er ekki fjárfestingarráðgjöf. Ritstjórnarstefna. Uppfært 18. október 2026.