Tætigildi (e. hash) er stuttur stafastrengur sem reiknaður er út frá gögnum með svokölluðu tætifalliTætifallStærðfræðiaðferð sem breytir gögnum af hvaða stærð sem er í stutt fingrafar af fastri lengd, svokallað tætigildi. (e. hash function). Það virkar eins og fingrafar: sömu gögn gefa alltaf sama tætigildi, en minnsta breyting á gögnunum gefur gjörólíkt gildi.
Hvernig lítur tætigildi út?
Bitcoin notar tætifallið SHA-256, sem skilar alltaf 64 stafa streng, sama hversu mikil gögnin eru. Sjáðu hvernig einn lítill stafur breytir öllu:
- „Halló“ gefur
e6db4b9895ed52c441fa38a26aa5c18e8e43e5c0eb55aaa7e010c0e8779dc965 - „halló“ gefur
1d756f081d34a81de90ea85360856b642eae671c36533dea137062492c5e3f9d
Tætifall virkar bara í aðra áttina. Það tekur tölvu sekúndubrot að reikna tætigildi, en það er ekki hægt að reikna gögnin til baka út frá því.
Til hvers er tætigildi notað?
- Að tengja bálka saman. Hver bálkurBálkurHópur færslna sem bætist við bálkakeðjuna í einu lagi, ásamt tilvísun í bálkinn á undan. geymir tætigildi bálksins á undan. Ef einhver breytti gamalli færslu myndi tætigildið breytast og keðjan slitna. Það gerir bálkakeðjunaBálkakeðjaOpin færsluskrá þar sem færslur eru geymdar í bálkum og hver bálkur vísar í þann á undan, svo ekki er hægt að breyta eldri færslum án þess að það sjáist. í raun óbreytanlega.
- Námuvinnsla. Í námuvinnsluNámuvinnslaFerlið þar sem tölvur keppast við að leysa reikningsþraut til að bæta næsta bálki við bálkakeðjuna og fá ný bitcoin og færslugjöld að launum. reikna tölvur tætigildi aftur og aftur í leit að gildi sem uppfyllir skilyrði netsins. Fjöldi tilrauna á sekúndu kallast reiknigetaReiknigetaFjöldi ágiskana sem allar námuvinnslutölvur rafmyntanets gera á sekúndu, og mælikvarði á hve vel netið er varið gegn árásum..
- Auðkenni færslna og veskisfanga. Hver færsla fær tætigildi sem auðkenni, og veskisföng eru líka reiknuð með tætiföllum.
Tætigildi er hluti af dulritunDulritunStærðfræðilegar aðferðir sem vernda upplýsingar og sanna hver sendi þær, og eru undirstaðan að öryggi rafmynta., en það felur ekki upplýsingar. Það sannar að þær hafi ekki breyst.
Ritstjórn Myntkaupa skrifar allt efni Rafmyntaskólans og yfirfer það reglulega. Efnið er til fræðslu og er ekki fjárfestingarráðgjöf. Ritstjórnarstefna. Uppfært 18. október 2026.