Veðhlutfall (LTV)

Á enskuloan-to-value ratio (LTV)

Hlutfall láns af verðmæti veðsins á bak við það. Hámarksveðhlutfall segir hve mikið má taka að láni á móti veðinu.

Veðhlutfall (e. loan-to-value ratio, LTV) er hlutfall láns af verðmæti veðsinsVeðEign sem lögð er fram til tryggingar fyrir láni. Í DeFi þarf veðið yfirleitt að vera meira virði en lánið. sem stendur á bak við það. Ef þú skuldar 6.000 kr. á móti veði sem er 10.000 kr. virði er veðhlutfallið 60%.

Eins og í íbúðaláni

Ef þú hefur keypt íbúð þekkir þú hugtakið. Samkvæmt reglum Seðlabanka Íslands frá 2025 má veðhlutfall íbúðalána til neytenda ekki fara yfir 80% af markaðsverði, eða 90% við fyrstu kaup. Lánaþjónustur í DeFiDeFi (dreifstýrð fjármál)Fjármálaþjónusta, eins og lán, sparnaður og viðskipti, sem keyrir á snjallsamningum á bálkakeðju í stað banka eða annarra milliliða. byggja á sömu hugsun. Munurinn er sá að verð rafmynta getur breyst um tugi prósenta á nokkrum dögum, og veðhlutfallið breytist með.

Hámarkið og staðan núna

Tvær tölur skipta máli:

  • Hámarksveðhlutfall (e. max LTV) segir hve mikið þú mátt taka að láni. Það er ákveðið fyrir hverja rafmynt, og eignir sem sveiflast mikið fá lægra hámark.
  • Núverandi veðhlutfall er staða lánsins þíns á hverjum tíma. Það hækkar ef verð veðsins lækkar eða skuldin vex með vöxtum.

Dæmi: Þú leggur fram ether að verðmæti 10.000 Bandaríkjadala og hámarksveðhlutfallið er 75%. Þá getur þú tekið allt að 7.500 dala lán. Ef þú tekur 6.000 dala lán er núverandi veðhlutfall 60%. Ef verðið á ether lækkar um fjórðung er veðið 7.500 dala virði og veðhlutfallið komið í 80%.

Lánaþjónustur eins og Aave setja líka hærra mark, svokölluð sölumörk (e. liquidation threshold). Ef veðhlutfallið fer yfir þau má hefja þvingaða söluÞvinguð salaÞegar veð er selt sjálfkrafa upp í skuld, eða skuldsettri stöðu lokað, af því að veðið eða tryggingin dugar ekki lengur.. Ef sölumörkin í dæminu væru 80% myndi lækkun um rúman fjórðung duga til. Talan health factorHealth factorTala sem sýnir hve vel veð dugar fyrir láni í DeFi. Ef hún fer undir 1 má selja hluta veðsins upp í skuldina. mælir það sama á annan hátt.

Ritstjórn Myntkaupa skrifar allt efni Rafmyntaskólans og yfirfer það reglulega. Efnið er til fræðslu og er ekki fjárfestingarráðgjöf. Ritstjórnarstefna. Uppfært 18. október 2026.