Veskjatæmir

Á enskuwallet drainer

Svikaforrit á falskri vefsíðu sem platar þig til að samþykkja færslu eða heimild sem tæmir rafmyntaveskið þitt.

Veskjatæmir (e. wallet drainer) er svikaforrit sem tæmir rafmyntaveski. Það er falið á falskri vefsíðu sem lítur út eins og þekkt þjónusta, til dæmis kauphöll, NFT-verkefni eða AirdropAirdropÞegar rafmyntaverkefni sendir ókeypis tóka beint í veski fólks, oftast til að kynna sig, en fölsuð airdrops eru líka algeng svikaleið.. Þegar þú tengir veskið og samþykkir það sem birtist gefur þú svikaranum í raun leyfi til að taka rafmyntina þína. Hann þarf ekki endurheimtarorðinEndurheimtarorðRöð 12 eða 24 orða sem allir lyklar veskisins eru reiknaðir út frá, svo hver sem hefur orðin getur endurheimt veskið og tekið rafmyntina.: undirskriftin þín dugar.

Hvernig virkar það?

Í eigin vörsluEigin varslaÞegar þú geymir einkalyklana að rafmyntinni þinni í eigin veski, svo enginn annar ræður yfir henni en ábyrgðin á lyklunum er öll þín. staðfestir þú hverja aðgerð með því að undirrita hana í veskinu. Veskjatæmir misnotar það:

  • Heimild til að færa tóka. Á Ethereum og svipuðum netum getur þú veitt snjallsamningiSnjallsamningurForrit á bálkakeðju sem keyrir sjálfkrafa þegar tiltekin skilyrði eru uppfyllt og gerir nákvæmlega það sem það var forritað til að gera. heimild (e. approval) til að færa tóka fyrir þína hönd. Ef heimildin fer til svikara getur hann tæmt tókana hvenær sem er, jafnvel löngu síðar.
  • Undirskrift sem lítur sakleysislega út. Sumar beiðnir líta út eins og venjuleg innskráning en veita í raun leyfi til að færa tóka.
  • Bein færsla. Stundum er færsla sem sendir allt á fang svikarans einfaldlega falin á bak við hnapp eins og „Sækja verðlaun“.

Svikaforritin eru oft seld sem þjónusta. Hópar eins og Inferno Drainer leigðu svikurum tilbúin forrit og tóku 20% af ráninu. Samkvæmt öryggisfyrirtækinu Scam Sniffer stálu veskjatæmar um 494 milljónum dala frá 332.000 veskjum árið 2024. Árið 2025 fór tjónið niður í um 84 milljónir dala, en svikin eru enn algeng.

Hvernig verst þú?

  • Farðu aðeins inn á síður sem þú þekkir, og sláðu slóðina inn í stað þess að smella á tengla í skilaboðum eða auglýsingum.
  • Lestu hvað þú ert að samþykkja. Ef veskið biður um heimild, „approve“ eða „permit“ sem þú skilur ekki skaltu hætta við.
  • Varastu ókeypis tóka og verðlaun. Loftgjafir og „vinningar“ sem krefjast þess að þú tengir veskið eru algengasta beitan.
  • Notaðu sérstakt veski með lítilli upphæð fyrir nýjar síður og geymdu meginhlutann annars staðar, helst í vélbúnaðarveskiVélbúnaðarveskiLítið tæki sem geymir einkalykla án nettengingar og undirritar færslur inni í tækinu, svo lyklarnir fara aldrei yfir í tölvuna eða símann..
  • Afturkallaðu gamlar heimildir. Bálkakönnuðir eins og Etherscan sýna hvaða heimildir veskið hefur veitt.

Vélbúnaðarveski ver þó ekki gegn öllu. Ef þú staðfestir skaðlega undirskrift á tækinu fer hún í gegn. Það sem skiptir mestu er að vita hvað þú samþykkir.

Ritstjórn Myntkaupa skrifar allt efni Rafmyntaskólans og yfirfer það reglulega. Efnið er til fræðslu og er ekki fjárfestingarráðgjöf. Ritstjórnarstefna. Uppfært 2. nóvember 2026.