Aave er dreifstýrð lánaþjónusta, hluti af DeFiDeFi (dreifstýrð fjármál)Fjármálaþjónusta, eins og lán, sparnaður og viðskipti, sem keyrir á snjallsamningum á bálkakeðju í stað banka eða annarra milliliða., sem keyrir á snjallsamningumSnjallsamningurForrit á bálkakeðju sem keyrir sjálfkrafa þegar tiltekin skilyrði eru uppfyllt og gerir nákvæmlega það sem það var forritað til að gera. á Ethereum og fleiri netkerfum. Fólk leggur þar inn rafmynt og fær vexti, eða tekur lán með aðra rafmynt að veðiVeðEign sem lögð er fram til tryggingar fyrir láni. Í DeFi þarf veðið yfirleitt að vera meira virði en lánið.. AAVE, með hástöfum, er stjórnunartókiStjórnunartókiTóki sem veitir atkvæðisrétt um reglur og sjóði DeFi-þjónustu. Hann er ekki hlutabréf og veitir hvorki eignarhlut né rétt til arðs. þjónustunnar.
Hvernig virkar Aave?
Aave minnir á veðlánara: þú leggur fram verðmæti og færð lán á móti. Munurinn er sá að hugbúnaður sér um allt, allan sólarhringinn, og fylgist stöðugt með því hvort veðið dugi fyrir láninu. Veðið þarf alltaf að vera meira virði en lánið og vextirnir ráðast af því hve stór hluti fjárins í hverjum sjóði er í láni.
Staða hvers lántaka er metin með health factorHealth factorTala sem sýnir hve vel veð dugar fyrir láni í DeFi. Ef hún fer undir 1 má selja hluta veðsins upp í skuldina.. Ef talan fer undir 1, til dæmis eftir verðfall, má gera upp hluta lánsins með veðinu og álagi. Það kallast þvinguð salaÞvinguð salaÞegar veð er selt sjálfkrafa upp í skuld, eða skuldsettri stöðu lokað, af því að veðið eða tryggingin dugar ekki lengur..
Saga og tóki
Stani Kulechov stofnaði forverann ETHLend árið 2017. Nafnið Aave, sem er finnska og þýðir draugur, var tekið upp 18. september 2018. Fyrsta útgáfa Aave fór í loftið í janúar 2020 og sú fjórða, Aave V4, 30. mars 2026.
AAVE kom í stað eldri tókans LEND árið 2020 og heildarframboðið er 16 milljónir. Handhafar kjósa í Aave DAO um vexti, nýjar eignir og aðrar breytingar á þjónustunni.
Hvað er gott að vita?
- Aave er DeFi-þjónusta. Lánaþjónustan hefur ekki starfsleyfi samkvæmt MiCA og engin innstæðutrygging nær yfir hana.
- Snarpt verðfall getur leitt til þvingaðrar sölu, og villur í kóða eða rangar verðupplýsingar geta valdið tapi.
- Aave og AAVE er ekki það sama. Hægt er að nota þjónustuna án þess að eiga tókann.
Ritstjórn Myntkaupa skrifar allt efni Rafmyntaskólans og yfirfer það reglulega. Efnið er til fræðslu og er ekki fjárfestingarráðgjöf. Ritstjórnarstefna. Uppfært 18. október 2026.