Aðgangslykill (passkey)

Á enskupasskey

Innskráning án lykilorðs, þar sem síminn eða tölvan staðfestir að þetta sért þú. Aðgangslyklar virka ekki á fölskum síðum og verja því gegn vefveiðum.

Aðgangslykill (e. passkey) er leið til að skrá sig inn án lykilorðs. Í stað þess að slá inn lykilorð staðfestir þú innskráninguna í símanum eða tölvunni, oftast með fingrafari, andlitsgreiningu eða PIN-númeri tækisins. Aðgangslyklar byggja á opnum stöðlum FIDO Alliance, samtaka tæknifyrirtækja, og Apple, Google og Microsoft styðja þá öll.

Hvernig virka þeir?

Aðgangslykill er lyklapar, svipað og í rafmyntaveski. Einkalykillinn verður eftir á tækinu þínu, eða í lyklakippu sem fylgir aðgangi þínum hjá Apple eða Google, og þjónustan geymir aðeins dreifilykilinnDreifilykillOpinber lykill, reiknaður út frá einkalyklinum, sem óhætt er að deila og aðrir nota til að staðfesta undirskriftir þínar.. Þegar þú skráir þig inn sannar tækið að það eigi einkalykilinn, án þess að senda hann neitt.

Það sem gerir aðgangslykla sérstaka er að hver lykill er bundinn við vefslóð þjónustunnar. Ef þú lendir á falskri síðu sem lítur alveg eins út og sú rétta virkar lykillinn ekki, því slóðin er önnur. Það eru heldur engin lykilorð til sem geta lekið úr gagnagrunni þjónustunnar.

Af hverju skipta þeir máli?

Flest innbrot á reikninga byrja á stolnu lykilorði eða kóða sem fólk er platað til að gefa upp í vefveiðumVefveiðarSvik þar sem svikahrappar þykjast vera traust fyrirtæki eða stofnun til að fá þig til að gefa upp lykilorð, kortaupplýsingar eða endurheimtarorð.. Aðgangslykill lokar fyrir báðar leiðir. Lögreglan segir aðgangslykla öruggari en lykilorð.

  • Notaðu aðgangslykla þar sem þeir eru í boði, ekki síst á tölvupóstinum.
  • Hafðu áfram tvíþætta auðkenninguTvíþætt auðkenningInnskráning sem krefst tveggja ólíkra sannana á því hver þú ert, til dæmis lykilorðs og kóða úr appi, svo stolið lykilorð dugar ekki eitt og sér. á aðgöngum sem styðja ekki aðgangslykla.
  • Gakktu úr skugga um að þú komist inn þótt síminn týnist, til dæmis með öðru tæki eða varakóðum.

Aðgangslykill er ekki það sama og einkalykillEinkalykillLeynileg tala sem sannar að þú eigir rafmyntina í veskinu þínu. Sá sem hefur einkalykilinn ræður yfir rafmyntinni. að rafmyntaveski. Hann veitir aðgang að reikningi hjá þjónustu, ekki beint að rafmynt á bálkakeðju.

Ritstjórn Myntkaupa skrifar allt efni Rafmyntaskólans og yfirfer það reglulega. Efnið er til fræðslu og er ekki fjárfestingarráðgjöf. Ritstjórnarstefna. Uppfært 2. nóvember 2026.