Vörsluaðili (e. custodian) er fyrirtæki sem geymir rafmynt fyrir hönd annarra. Vörsluaðilinn heldur utan um einkalyklanaEinkalykillLeynileg tala sem sannar að þú eigir rafmyntina í veskinu þínu. Sá sem hefur einkalykilinn ræður yfir rafmyntinni. og viðskiptavinurinn sér stöðuna sína í appi eða á vef. Flestar rafmyntamiðlanirRafmyntamiðlunFyrirtæki eða vettvangur þar sem þú kaupir, selur og skiptir rafmyntum, til dæmis fyrir krónur. eru vörsluaðilar.
Hvað gerir vörsluaðili?
Þetta líkist því að geyma peninga í banka. Þú átt innstæðuna en bankinn geymir hana og sér um öryggið. Á sama hátt átt þú rafmyntina en vörsluaðilinn passar lyklana.
Vörsluaðilar nota oft blöndu af heitum og köldum veskjum, auk tækni eins og MPCMPC (fjölaðilaútreikningur)Tækni sem skiptir einkalykli í nokkra hluta á aðskildum kerfum, svo færslur eru undirritaðar í sameiningu án þess að heill lykill sé nokkurs staðar til. og fjölundirskrifta, svo enginn einn starfsmaður eða einn lykill ráði yfir eignunum. Myntkaup notar til dæmis MPC-tækni frá Fireblocks, svo enginn einn einkalykill stjórnar eignum viðskiptavina.
Hvað segja lögin?
Vörsluaðili sem býður þjónustu á Íslandi þarf starfsleyfi sem þjónustuveitandi sýndareigna samkvæmt MiCAMiCAReglugerð ESB um markaði fyrir sýndareignir, sem gildir á Íslandi frá 1. janúar 2026 og setur sömu reglur um rafmyntaþjónustu um allt EES., sem hefur gilt hér frá 1. janúar 2026. Hann þarf meðal annars að:
- halda eignum viðskiptavina aðskildum frá eigin eignum, svo lánardrottnar hans geti ekki gengið að þeim ef hann verður gjaldþrota
- bera ábyrgð á tjóni sem rekja má til hans, til dæmis ef brotist er inn í kerfi hans
Ábyrgðin er takmörkuð við markaðsvirði þess sem tapaðist.
Hver er áhættan?
Þú treystir vörsluaðilanum fyrir eignunum. Ef hann verður fyrir árás, fer illa með eignir eða stöðvar úttektir getur þú lent í vandræðum. Þess vegna skiptir máli að velja vörsluaðila með starfsleyfi. Hinn kosturinn er eigin varslaEigin varslaÞegar þú geymir einkalyklana að rafmyntinni þinni í eigin veski, svo enginn annar ræður yfir henni en ábyrgðin á lyklunum er öll þín., þar sem lyklarnir eru í þínum höndum.
Ritstjórn Myntkaupa skrifar allt efni Rafmyntaskólans og yfirfer það reglulega. Efnið er til fræðslu og er ekki fjárfestingarráðgjöf. Ritstjórnarstefna. Uppfært 18. október 2026.