Afleiður (e. derivatives) eru samningar sem draga verðgildi sitt af annarri eign, svokallaðri undirliggjandi eign. Hún getur verið hlutabréf, gjaldmiðill, hrávara eða rafmynt. Sá sem á afleiðu á ekki eignina sjálfa, heldur samning sem hækkar eða lækkar í verði eftir því hvernig verð hennar þróast.
Algengar gerðir
- Framvirkir samningar og framtíðarsamningar (e. forwards, futures): samkomulag um að kaupa eða selja eign á fyrirfram ákveðnu verði á tilteknum degi.
- Valréttir (e. options): réttur, en ekki skylda, til að kaupa eða selja eign á ákveðnu verði innan tiltekins tíma.
- Ótímabundnir framvirkir samningar (e. perpetual futures): samningar sem renna aldrei út og eru mikið notaðir í rafmyntaviðskiptum.
Lestu meira um ótímabundna framvirka samningaÓtímabundinn framvirkur samningurAfleiða án gjalddaga sem fylgir verði rafmyntar. Reglulegar greiðslur halda henni nálægt markaðsverði og hún leyfir skuldsetningu..
Til hvers eru þær notaðar?
Afleiður eru notaðar til að verjast verðbreytingum, til dæmis þegar útflutningsfyrirtæki festir gengi gjaldeyris fram í tímann. Þær eru líka notaðar til að hagnast á verðbreytingum, oft með skuldsetninguSkuldsetningAð eiga viðskipti með lánsfé, sem margfaldar bæði hagnað og tap og getur þurrkað út allt framlagið á skömmum tíma., og til skortsöluSkortsalaAð selja eign sem þú átt ekki, í von um að kaupa hana aftur á lægra verði. Skortsali hagnast ef verðið lækkar.. Skuldsetningin gerir afleiðuviðskipti áhættusöm, og tapið getur numið allri tryggingunni á skömmum tíma.
Reglur í Evrópu
Innan EES teljast afleiður fjármálagerningar. Þær falla undir MiFID II, evrópsku tilskipunina um markaði fyrir fjármálagerninga, en ekki undir MiCAMiCAReglugerð ESB um markaði fyrir sýndareignir, sem gildir á Íslandi frá 1. janúar 2026 og setur sömu reglur um rafmyntaþjónustu um allt EES.. Það á líka við um afleiður á rafmynt.
Í febrúar 2026 minnti evrópska verðbréfamarkaðseftirlitið ESMA á að ótímabundnir framvirkir samningar féllu líklega undir takmarkanir á mismunasamningum (e. CFD). Þeim fylgja meðal annars hámark á skuldsetningu, skylda til að loka stöðu þegar tryggingin rýrnar of mikið og vernd gegn því að viðskiptavinur tapi meira en hann lagði inn.
Ritstjórn Myntkaupa skrifar allt efni Rafmyntaskólans og yfirfer það reglulega. Efnið er til fræðslu og er ekki fjárfestingarráðgjöf. Ritstjórnarstefna. Uppfært 18. október 2026.