Lykilorðabanki (e. password manager) er forrit sem býr til, geymir og fyllir út lykilorð fyrir þig. Í stað þess að muna tugi lykilorða þarft þú aðeins að muna eitt aðallykilorð, sem opnar bankann. Lögreglan ráðleggur fólki að nota nýtt lykilorð fyrir hvern aðgang, og lykilorðabanki gerir það auðvelt.
Af hverju skiptir það máli?
Gögn leka reglulega úr kerfum fyrirtækja. Svikarar kaupa stolin netföng og lykilorð og prófa þau á öðrum þjónustum, svo sem tölvupósti, heimabanka og rafmyntamiðlunum. Ef sama lykilorðið er notað víða opnar einn leki margar dyr. Með lykilorðabanka verður hvert lykilorð langt, handahófskennt og aðeins notað á einum stað.
Lykilorðabanki ver þig líka gegn vefveiðumVefveiðarSvik þar sem svikahrappar þykjast vera traust fyrirtæki eða stofnun til að fá þig til að gefa upp lykilorð, kortaupplýsingar eða endurheimtarorð., því hann fyllir lykilorðið aðeins út á réttri vefslóð. Ef hann býðst ekki til að fylla út á síðu sem þú notar oft getur það verið merki um að síðan sé fölsk.
Hvaða gerðir eru til?
- Innbyggðir lykilorðabankar fylgja iPhone, Android-símum og helstu vöfrum. Þeir eru ókeypis og samstilltir á milli tækja.
- Sérstök forrit, eins og Bitwarden eða 1Password, virka á öllum tækjum og stýrikerfum.
Margir lykilorðabankar geyma líka aðgangslyklaAðgangslykill (passkey)Innskráning án lykilorðs, þar sem síminn eða tölvan staðfestir að þetta sért þú. Aðgangslyklar virka ekki á fölskum síðum og verja því gegn vefveiðum., sem koma í stað lykilorða á æ fleiri þjónustum.
Það sem gott er að vita
- Aðallykilorðið skiptir öllu. Hafðu það langt, notaðu það hvergi annars staðar og kveiktu á tvíþættri auðkenninguTvíþætt auðkenningInnskráning sem krefst tveggja ólíkra sannana á því hver þú ert, til dæmis lykilorðs og kóða úr appi, svo stolið lykilorð dugar ekki eitt og sér. á bankanum sjálfum.
- Endurheimtarorð eiga ekki heima þar. EndurheimtarorðEndurheimtarorðRöð 12 eða 24 orða sem allir lyklar veskisins eru reiknaðir út frá, svo hver sem hefur orðin getur endurheimt veskið og tekið rafmyntina. veita beinan aðgang að rafmynt og verða ekki endurstillt eins og lykilorð. Öruggast er að geyma þau utan nets, á blaði eða málmplötu á öruggum stað.
Ritstjórn Myntkaupa skrifar allt efni Rafmyntaskólans og yfirfer það reglulega. Efnið er til fræðslu og er ekki fjárfestingarráðgjöf. Ritstjórnarstefna. Uppfært 2. nóvember 2026.