Polkadot er net sem tengir saman margar sérhæfðar bálkakeðjurBálkakeðjaOpin færsluskrá þar sem færslur eru geymdar í bálkum og hver bálkur vísar í þann á undan, svo ekki er hægt að breyta eldri færslum án þess að það sjáist., svokallaðar parachains, sem deila sameiginlegu öryggi. DOT er rafmynt netsins: hún er lögð að veði til að tryggja netið, notuð til að kaupa reiknigetu á því og til að greiða atkvæði um breytingar. Gavin Wood, einn af stofnendum Ethereum, kynnti hugmyndina árið 2016, og fyrsti bálkur Polkadot varð til 26. maí 2020.
Hvernig virkar Polkadot?
Aðalkeðjan (e. relay chain) sér um samstöðu og öryggi og miðlar skilaboðum á milli keðja. Parachains hafa eigin reglur, en staðfestingaraðilarStaðfestingaraðiliÞátttakandi á neti sem notar proof of stake og leggur eigin rafmynt að veði til að búa til og staðfesta bálka gegn umbun. aðalkeðjunnar yfirfara bálka þeirra. Netið notar afbrigði af proof of stakeProof of stakeSamstöðuaðferð þar sem rafmynt er lögð að veði fyrir réttinum til að búa til bálka, og sá sem svindlar getur tapað hluta veðsins. þar sem DOT-eigendur velja staðfestingaraðila og leggja DOT að veði á bak við þá.
Undir heitinu Polkadot 2.0 leysti agile coretime uppboð af hólmi í september 2024. Verkefni kaupa nú reiknigetu á netinu með DOT eftir þörfum.
Framboð DOT
Í september 2025 samþykktu DOT-eigendur í atkvæðagreiðslu að setja hámarksframboðHámarksframboðMesti fjöldi eininga sem getur nokkurn tímann orðið til af tiltekinni rafmynt samkvæmt reglum hennar, til dæmis 21 milljón bitcoin. við 2,1 milljarð DOT. Útgáfa nýrra DOT var skorin niður um rúman helming 14. mars 2026 og á að minnka áfram á tveggja ára fresti.
Hvað er gott að vita?
DOT-eigendur ráða breytingum á netinu í atkvæðagreiðslum, svo DOT er líka stjórnunartókiStjórnunartókiTóki sem veitir atkvæðisrétt um reglur og sjóði DeFi-þjónustu. Hann er ekki hlutabréf og veitir hvorki eignarhlut né rétt til arðs.. Reglurnar hafa breyst mikið á stuttum tíma. Frá júlí 2026 geta tilnefnendur, sem leggja DOT að veði á bak við staðfestingaraðila, fengið það laust á mest tveimur dögum í stað 28 daga. Verð DOT sveiflast mikið.
Ritstjórn Myntkaupa skrifar allt efni Rafmyntaskólans og yfirfer það reglulega. Efnið er til fræðslu og er ekki fjárfestingarráðgjöf. Ritstjórnarstefna. Uppfært 18. október 2026.