Proof of stake

Samstöðuaðferð þar sem rafmynt er lögð að veði fyrir réttinum til að búa til bálka, og sá sem svindlar getur tapað hluta veðsins.

Proof of stake er aðferð sem bálkakeðja notar til að velja hver fær að búa til næsta bálkBálkurHópur færslna sem bætist við bálkakeðjuna í einu lagi, ásamt tilvísun í bálkinn á undan.. Í stað þess að keppa með reiknivinnu, eins og í proof of workProof of workSamstöðuaðferð þar sem rétturinn til að bæta næsta bálki við bálkakeðjuna fellur í hlut þess sem fyrstur leysir erfiða reikningsþraut., leggja þátttakendur eigin rafmynt að veði. Þaðan kemur nafnið, því stake þýðir veð. Þátttakendurnir kallast staðfestingaraðilarStaðfestingaraðiliÞátttakandi á neti sem notar proof of stake og leggur eigin rafmynt að veði til að búa til og staðfesta bálka gegn umbun. (e. validators).

Hvernig virkar proof of stake?

Á EthereumEthereumOpin bálkakeðja sem getur keyrt forrit og snjallsamninga, með eigin rafmynt sem heitir ether (ETH).-netinu þarf hver staðfestingaraðili að leggja 32 ETH að veði. Á 12 sekúndna fresti er einn þeirra valinn af handahófi til að leggja fram bálk, og aðrir staðfestingaraðilar greiða atkvæði um hvort bálkurinn sé gildur. Fyrir þetta fá þeir umbun í Ether (ETH)Ether (ETH)Rafmynt Ethereum-netsins, notuð til að greiða færslugjöld, sem veð við staðfestingu bálka og til að senda verðmæti á milli fólks..

Ef staðfestingaraðili reynir að svindla, til dæmis með því að leggja fram tvo ólíka bálka fyrir sama tímahólf, er hluti veðsins gerður upptækur. Þetta kallast „slashingSlashingRefsing á netum sem nota proof of stake. Staðfestingaraðili sem brýtur reglurnar missir hluta af veðinu sínu og er vikið af netinu.“. Staðfestingaraðilar sem eru ekki tengdir þegar röðin kemur að þeim fá minni umbun.

Þetta virkar svipað og tryggingarfé við leigu. Ef allt er í lagi fæst tryggingin endurgreidd, en ef tjón verður gengur hún upp í það.

Proof of stake og proof of work

Ethereum skipti úr proof of work yfir í proof of stake 15. september 2022 og við það minnkaði orkunotkun netsins um 99,95%. Margar aðrar rafmyntir nota líka proof of stake, til dæmis Solana og Cardano.

Gagnrýnendur benda á að með proof of stake fái þeir sem eiga mest líka mesta umbun, og að stórar StakingStakingAð leggja rafmynt að veði á neti sem notar proof of stake, til að taka þátt í að staðfesta færslur gegn umbun í sömu rafmynt.-þjónustur geti safnað miklu valdi á fáar hendur.

Ritstjórn Myntkaupa skrifar allt efni Rafmyntaskólans og yfirfer það reglulega. Efnið er til fræðslu og er ekki fjárfestingarráðgjöf. Ritstjórnarstefna. Uppfært 18. október 2026.