Sui er opin bálkakeðjaBálkakeðjaOpin færsluskrá þar sem færslur eru geymdar í bálkum og hver bálkur vísar í þann á undan, svo ekki er hægt að breyta eldri færslum án þess að það sjáist. sem er hönnuð fyrir hraðar færslur og forrit. SUI er rafmynt netsins: með henni er greitt fyrir færslur og geymslu gagna, og hún er lögð að veði til að tryggja netið. Fyrirtækið Mysten Labs, sem fyrrverandi starfsmenn Meta stofnuðu árið 2021, þróaði Sui, og netið fór í gang 3. maí 2023.
Hvernig virkar Sui?
SnjallsamningarSnjallsamningurForrit á bálkakeðju sem keyrir sjálfkrafa þegar tiltekin skilyrði eru uppfyllt og gerir nákvæmlega það sem það var forritað til að gera. á Sui eru skrifaðir í forritunarmálinu Move, sem upphaflega var hannað fyrir Diem, rafmyntarverkefni Meta. Sui geymir allt sem hluti (e. objects) með einstöku auðkenni. Hver færsla tilgreinir fyrirfram hvaða hluti hún snertir, svo færslur sem snerta ólíka hluti geta keyrt samhliða. Hlutir í eigu eins aðila fara hraðleið, en sameiginlegir hlutir þurfa að fara í gegnum samstöðu netsins.
Sui notar proof of stakeProof of stakeSamstöðuaðferð þar sem rafmynt er lögð að veði fyrir réttinum til að búa til bálka, og sá sem svindlar getur tapað hluta veðsins., og samstöðuaðferðin heitir Mysticeti. Færslugjöld eru greidd í SUI, í tveimur hlutum: fyrir útreikninga og fyrir geymslu gagna.
SUI
Aldrei verða til fleiri en 10 milljarðar SUI. Það er hámarksframboðHámarksframboðMesti fjöldi eininga sem getur nokkurn tímann orðið til af tiltekinni rafmynt samkvæmt reglum hennar, til dæmis 21 milljón bitcoin. SUI, og myntunum er hleypt í umferð smám saman samkvæmt fyrirfram ákveðinni áætlun. SUI-eigendur geta falið staðfestingaraðilumStaðfestingaraðiliÞátttakandi á neti sem notar proof of stake og leggur eigin rafmynt að veði til að búa til og staðfesta bálka gegn umbun. SUI til að leggja að veði og fengið hlut í umbuninni.
Hvað er gott að vita?
Sui-netið hefur nokkrum sinnum stöðvast, síðast í maí 2026. Stór hluti SUI er enn læstur og losnar á næstu árum, og verð SUI sveiflast mikið.
Ritstjórn Myntkaupa skrifar allt efni Rafmyntaskólans og yfirfer það reglulega. Efnið er til fræðslu og er ekki fjárfestingarráðgjöf. Ritstjórnarstefna. Uppfært 18. október 2026.