XRP er rafmynt XRP Ledger, opinnar bálkakeðju sem fór í gang í júní 2012. Netið er hannað til að flytja verðmæti hratt og ódýrt: færsla er staðfest á 3-5 sekúndum og lágmarksgjaldið er 0,00001 XRP.
Hvernig virkar XRP?
XRP Ledger notar hvorki námuvinnslu né veðsetningu heldur eigin samstöðuaðferðSamstöðuaðferðReglurnar sem gera þúsundum tölva kleift að koma sér saman um eina útgáfu af bálkakeðjunni án þess að treysta neinum einum aðila.. StaðfestingaraðilarStaðfestingaraðiliÞátttakandi á neti sem notar proof of stake og leggur eigin rafmynt að veði til að búa til og staðfesta bálka gegn umbun., sem hver nóða velur sjálf, koma sér saman um færslurnar á nokkurra sekúndna fresti. Gjaldi hverrar færslu er eytt, og það er alltaf greitt í XRP, hvað sem verið er að senda.
Allir 100 milljarðar XRP urðu til í upphafi og fleiri verða ekki til. Höfundar keðjunnar gáfu fyrirtækinu Ripple 80 milljarða. Í desember 2017 setti Ripple 55 milljarða í tímalás (e. escrow), og þaðan losnar einn milljarður í hverjum mánuði.
XRP og Ripple
Ripple er bandarískt fyrirtæki sem á mikið af XRP og notar það í greiðsluþjónustu sinni, Ripple Payments. Ripple gefur líka út stöðugleikamyntinaStöðugleikamyntRafmynt sem er hönnuð til að halda stöðugu verði, oftast með því að fylgja gengi Bandaríkjadals eða annars gjaldmiðils. RLUSD, meðal annars á XRP Ledger. Netið sjálft hefur þó engan miðlægan stjórnanda og hver sem er getur notað það.
Árið 2020 höfðaði bandaríska verðbréfaeftirlitið (SEC) mál gegn Ripple vegna sölu á XRP. Málinu lauk í ágúst 2025 og dómur um 125 milljóna dala sekt stendur.
Hvað er gott að vita?
- Þegar þú sendir XRP á rafmyntamiðlun þarf oft að fylla út destination tag, tölu sem segir hver á sendinguna.
- Nýtt veskisfangVeskisfangRuna af bókstöfum og tölustöfum sem þú gefur upp til að taka á móti rafmynt, svipað og reikningsnúmer í banka. á XRP Ledger þarf að fá að minnsta kosti 1 XRP til að virkjast. Sú upphæð situr eftir sem varasjóður.
Ritstjórn Myntkaupa skrifar allt efni Rafmyntaskólans og yfirfer það reglulega. Efnið er til fræðslu og er ekki fjárfestingarráðgjöf. Ritstjórnarstefna. Uppfært 18. október 2026.