Yfirburðir bitcoin (e. bitcoin dominance) eru hlutfall markaðsvirðisMarkaðsvirðiHeildarvirði allra eininga rafmyntar í umferð, reiknað sem verð einnar einingar margfaldað með fjölda þeirra. bitcoin af samanlögðu markaðsvirði allra rafmynta. Ef markaðsvirði allra rafmynta væri samtals 1.000 milljarðar króna og markaðsvirði bitcoin 600 milljarðar væru yfirburðir bitcoin 60%. Talan sýnir hve stóran hlut bitcoin á í rafmyntamarkaðnum í heild.
Hvað segir talan?
Fyrstu árin var bitcoinBitcoinFyrsta og stærsta rafmyntin, stafrænn gjaldmiðill sem enginn einn aðili stjórnar og takmarkast við 21 milljón bitcoin. nánast eina rafmyntin og hlutfallið nálægt 100%. Síðan hafa þúsundir annarra rafmynta bæst við. Í október 2026 var hlutfallið um 60% samkvæmt verðsíðunum CoinGecko og CoinMarketCap.
Margir fylgjast með tölunni til að átta sig á stemningunni á markaðnum:
- Þegar hlutfallið hækkar hefur bitcoin hækkað meira, eða lækkað minna, en aðrar rafmyntir. Margir túlka það þannig að fjárfestar séu varkárari, því bitcoin er stærst og elst og þykir traustari kostur en minni myntir.
- Þegar hlutfallið lækkar hafa aðrar rafmyntir, svokallaðar altcoinsAltcoinSamheiti yfir allar rafmyntir aðrar en bitcoin, stytting á enska heitinu „alternative coin“., hækkað meira en bitcoin. Slík tímabil eru stundum kölluð altcoin season.
Hvað er gott að vita?
- Stöðugleikamyntir hafa áhrif. StöðugleikamyntirStöðugleikamyntRafmynt sem er hönnuð til að halda stöðugu verði, oftast með því að fylgja gengi Bandaríkjadals eða annars gjaldmiðils. teljast með í heildinni. Þegar meira er gefið út af þeim stækkar heildin og hlutfall bitcoin lækkar, án þess að fólk hafi keypt aðrar rafmyntir.
- Síðum ber ekki alveg saman. Verðsíður telja ekki allar sömu myntirnar með, svo talan getur verið örlítið mismunandi eftir því hvar þú skoðar hana.
- Talan lýsir stöðunni í dag. Yfirburðir bitcoin segja ekkert um hvert verð stefnir, hvorki hjá bitcoin né öðrum rafmyntum.
Ritstjórn Myntkaupa skrifar allt efni Rafmyntaskólans og yfirfer það reglulega. Efnið er til fræðslu og er ekki fjárfestingarráðgjöf. Ritstjórnarstefna. Uppfært 18. október 2026.