Með starfsleyfi frá Seðlabanka Íslands
Myntkaup ehf. er þjónustuveitandi sýndareigna (CASP) samkvæmt MiCA. Hér er útskýrt hvað leyfið nær til og hvernig eignir viðskiptavina eru geymdar.
- Leyfishafi
- Myntkaup ehf.
- Kennitala
- 520717-0800
- Tegund
- Þjónustuveitandi sýndareigna (CASP)
- Lagagrunnur
- MiCA, reglugerð (ESB) 2023/1114
- Eftirlit
- Seðlabanki Íslands
- Útgefið
- 25. júní 2026
Það sem leyfið nær til
Varsla og umsýsla
Við geymum og höldum utan um sýndareignir fyrir hönd viðskiptavina.
Skipti fyrir fjármuni
Þú kaupir rafmyntir og selur þær aftur fyrir fjármuni.
Skipti milli sýndareigna
Þú skiptir einni sýndareign beint í aðra.
Millifærsluþjónusta
Við sendum sýndareignir á þitt eigið veski eða annan vettvang.
Í október 2026 er Myntkaup eini aðilinn á skrá Seðlabankans yfir þjónustuveitendur sýndareigna.
Hvernig eignirnar eru geymdar
Við notum blandað vörslufyrirkomulag sem sameinar skjótt aðgengi og öryggi.
Enginn einn lykill
Við notum Multi-Party Computation (MPC) frá Fireblocks. Lyklinum er skipt í marga hluta á aðskildum kerfum, svo tölvuþrjótur þyrfti að komast inn í mörg kerfi samtímis.
Undirvörsluaðilar með starfsleyfi
Verulegur hluti eigna viðskiptavina er í vörslu Coinbase í Lúxemborg og Kraken á Írlandi. Báðir eru með starfsleyfi sem þjónustuveitendur sýndareigna innan ESB.
Nákvæm skrá yfir hvern viðskiptavin
Hluti eigna er geymdur í sameiginlegum veskjum (e. omnibus wallets), en kerfið okkar skráir nákvæmlega hvað tilheyrir hverjum og einum á hverjum tíma.
Eignirnar þínar eru þínar
- Lagalega aðskildar frá eignum Myntkaupa.
- Varðar fyrir kröfum lánadrottna ef félagið yrði gjaldþrota.
- Aldrei lánaðar út eða notaðar í eigin fjárfestingar.
Íslendingar treysta Myntkaupum
Hlutfall rafmyntaeigenda: Nordic Crypto Adoption Survey 2025, K33 Research og Nordic Blockchain Association, 28. mars 2025, bls. 100.
Þú getur tekið út hvenær sem er
Úttektir fara fram í appinu eða á vefnum. Tvær leiðir eru í boði.
Á íslenskan bankareikning
Þú selur rafmyntina, færð USDC og biður um bankaúttekt. Úttektir eru afgreiddar alla daga og berast yfirleitt samdægurs, oft innan nokkurra klukkustunda.
Leiðbeiningar um bankaúttektÁ þitt eigið veski
Allar studdar rafmyntir nema USDC getur þú sent á eigið veski á upprunaneti myntarinnar.
Leiðbeiningar um rafmyntaúttektHver úttekt er staðfest með PIN-númeri í appinu og í tölvupósti. Óvenju stórar úttektir geta kallað á handvirka öryggisathugun áður en fjármunir eru sendir.
Hver ber ábyrgð ef eitthvað fer úrskeiðis
Myntkaup ber ábyrgð
- Ef tap má rekja til atviks á okkar valdi, til dæmis netárásar á kerfi okkar eða þjófnaðar starfsmanns.
- Þá endurgreiðum við þér markaðsvirði eignanna sem töpuðust.
Utan okkar stjórnar
- Bilanir í bálkakeðjunni sjálfri eða 51% árásir á netið.
- Ef þú hleypir óviðkomandi aðila inn á reikninginn þinn.

Fólk sem svarar þér
Sendu okkur póst á myntkaup@myntkaup.is eða notaðu samskiptaformið.
Viltu frekar tala saman? Biddu um símtal og við hringjum, yfirleitt innan 48 klukkustunda og oft fyrr.
Ef þú vilt kvarta
Kvörtun sendir þú í tölvupósti eða í gegnum samskiptaformið. Svona er ferlið.
- Innan 5 virkra daga
Við staðfestum móttöku skriflega og gefum málinu tilvísunarnúmer.
- Innan 30 daga
Við stefnum að formlegu svari. Ef málið tekur lengri tíma látum við þig vita.
- Ef þú unir ekki niðurstöðunni
Þú getur óskað eftir innri endurskoðun, leitað til úrskurðaraðila þar sem það á við eða beint kvörtuninni til Seðlabanka Íslands.
Verð rafmynta getur sveiflast mikið og þú getur tapað fé. Fjárfestu ekki meira en þú hefur efni á að tapa.
Síðast yfirfarið 18. október 2026