Skattframtal (e. tax return) er árleg skýrsla þar sem þú gerir Skattinum grein fyrir tekjum síðasta árs og eignum og skuldum í árslok. Skattar og gjöld eru lögð á samkvæmt framtalinu. Einstaklingar skila því rafrænt á þjónustuvef Skattsins, skattur.is, með rafrænum skilríkjum eða veflykli.
Hvenær er framtalinu skilað?
Framtali er skilað einu sinni á ári, yfirleitt í mars, vegna tekna ársins á undan. Árið 2026 var opnað fyrir skil 27. febrúar og fresturinn var til 13. mars. Ekki var hægt að sækja um lengri frest, en endurskoðendur og bókarar sem skila fyrir aðra höfðu frest til 15. apríl. Álagning fer fram í lok maí. Skatturinn tilkynnir fresti hvers árs á vef sínum.
Rafmynt á framtalinu
Framtalið er áritað með upplýsingum sem Skatturinn hefur fengið um tekjur, eignir og skuldir. Þú gætir þó þurft að færa inn tekjur og eignir sem eru ekki áritaðar.
Samkvæmt síðu Skattsins um rafmynt og leiðbeiningum með framtali 2026:
- SöluhagnaðurSöluhagnaðurHagnaður af sölu eignar á hærra verði en hún kostaði þig; hjá einstaklingum er hagnaður af rafmynt skattlagður sem fjármagnstekjur. af rafmynt fer í kafla 3.9, reit 522. Útreikninginn sýnir þú á fylgiblaði.
- Eign í rafmynt fer í kafla 4.4, reit 15, á markaðsverði í árslok. Þetta á líka við ef þú hefur ekkert selt.
Í leiðbeiningunum birtir Skatturinn gengi helstu rafmynta í árslok. Kaflar og reitir geta breyst milli ára, svo skoðaðu leiðbeiningar hvers árs.
Hvað er gott að vita?
Haltu utan um öll kaup, sölur og skipti allt árið. Þá er auðveldara að finna stofnverðStofnverðÞað sem eign kostaði þig, kaupverðið að viðbættri þóknun. Söluhagnaður er mismunurinn á söluverði og stofnverði. og reikna hagnaðinn, sem telst til fjármagnsteknaFjármagnstekjurTekjur einstaklinga af eignum, svo sem vextir, arður og söluhagnaður. Hagnaður af sölu rafmyntar telst til fjármagnstekna..
Ræddu þína stöðu við endurskoðanda eða Skattinn, ekki síst ef þú hefur ekki talið rafmynt fram áður.
Ritstjórn Myntkaupa skrifar allt efni Rafmyntaskólans og yfirfer það reglulega. Efnið er til fræðslu og er ekki fjárfestingarráðgjöf. Ritstjórnarstefna. Uppfært 18. október 2026.