Svikamylla (e. Ponzi scheme) er fjársvik þar sem fjárfestum er greidd „ávöxtun“ með peningum frá nýjum fjárfestum. Engin raunveruleg starfsemi skilar hagnaði. Svikamyllan gengur aðeins á meðan nýtt fé streymir inn og hrynur þegar það hættir. Hún er ein tegund fjárfestingasvikaFjárfestingasvikSvik þar sem lofað er miklum og öruggum hagnaði af fjárfestingu, oft í rafmynt, en svikahrappar taka einfaldlega peningana sem lagðir eru inn..
Hvernig virkar svikamylla?
Enska heitið kemur frá Charles Ponzi, sem blekkti fjárfesta í Bandaríkjunum á þriðja áratug 20. aldar með loforðum um gróða af frímerkjaviðskiptum.
Aðferðin er alltaf svipuð. Fyrstu fjárfestarnir fá greitt eins og lofað var og segja vinum og ættingjum frá. Fleiri bætast við og peningar þeirra greiða ávöxtun þeirra sem komu á undan. Skipuleggjendurnir taka sinn hlut. Þegar of fáir nýir bætast við, eða of margir vilja taka út í einu, hrynur allt og flestir tapa.
Í rafmyntaheiminum birtast svikamyllur oft sem lánaforrit, falskar StakingStakingAð leggja rafmynt að veði á neti sem notar proof of stake, til að taka þátt í að staðfesta færslur gegn umbun í sömu rafmynt.-þjónustur eða viðskiptaþjarkar sem lofa föstum daglegum hagnaði. Pýramídasvindl er náskylt, en þar fá þátttakendur fyrst og fremst greitt fyrir að fá aðra til liðs við sig.
Varúðarmerki
Bandaríska verðbréfaeftirlitið (SEC) nefnir meðal annars:
- mikinn hagnað með lítilli eða engri áhættu
- óeðlilega jafna ávöxtun, óháð því hvernig markaðir hreyfast
- seljendur og fyrirtæki án starfsleyfis
- leynilega eða flókna fjárfestingarstefnu sem enginn getur útskýrt
- erfiðleika við að taka út, eða boð um enn hærri ávöxtun ef þú bíður
Allar fjárfestingar fela í sér áhættu. Verð rafmynta einkennist af miklum sveiflumSveiflurMælikvarði á hve mikið og hve hratt verð eignar hækkar og lækkar., svo loforð um fasta ávöxtun eru sérstaklega ótrúverðug.
Ef þig grunar að þú hafir lent í svikamyllu skaltu hafa samband við bankann þinn og tilkynna málið til lögreglu á Ísland.is.
Ritstjórn Myntkaupa skrifar allt efni Rafmyntaskólans og yfirfer það reglulega. Efnið er til fræðslu og er ekki fjárfestingarráðgjöf. Ritstjórnarstefna. Uppfært 18. október 2026.