Altcoin er samheiti yfir allar rafmyntirRafmyntStafrænn gjaldmiðill sem byggir á dulritun og er skráður í sameiginlega færsluskrá, án þess að banki eða ríki gefi hann út eða stjórni honum. aðrar en BitcoinBitcoinFyrsta og stærsta rafmyntin, stafrænn gjaldmiðill sem enginn einn aðili stjórnar og takmarkast við 21 milljón bitcoin.. Orðið er stytting á enska heitinu „alternative coin“, það er mynt sem er valkostur við bitcoin. Í íslensku er ýmist talað um altcoins eða einfaldlega aðrar rafmyntir.
Dæmi
Altcoins eru af öllum stærðum og gerðum:
- Ether (ETH), mynt Ethereum-netsins og um árabil stærsta rafmyntin á eftir bitcoin.
- XRPXRPRafmynt XRP Ledger, bálkakeðju sem hefur verið í gangi frá 2012 og er hönnuð fyrir hraðar og ódýrar greiðslur, líka á milli landa. og Solana (SOL), sem eru meðal stærstu rafmynta heims miðað við markaðsvirði.
- Dogecoin (DOGE), sem byrjaði sem grín og er þekktasta dæmið um MemecoinMemecoinRafmynt sem er sprottin af netgríni eða jarmi, hefur yfirleitt lítið sem ekkert notagildi og byggir verð sitt nær eingöngu á umtali..
Sumir telja stöðugleikamyntirStöðugleikamyntRafmynt sem er hönnuð til að halda stöðugu verði, oftast með því að fylgja gengi Bandaríkjadals eða annars gjaldmiðils. með altcoins, aðrir ekki. Orðið hefur enga nákvæma skilgreiningu.
Hvernig eru altcoins ólík bitcoin?
Fyrstu altcoins voru oft afrit af kóða Bitcoin með smávægilegum breytingum, til dæmis styttri tíma á milli bálka. Seinna komu net með allt aðra eiginleika, eins og Ethereum sem getur keyrt forrit, og net sem nota proof of stakeProof of stakeSamstöðuaðferð þar sem rafmynt er lögð að veði fyrir réttinum til að búa til bálka, og sá sem svindlar getur tapað hluta veðsins. í stað námuvinnslu.
Hvað er gott að vita?
Til eru þúsundir slíkra mynta og flestar eru smáar. Verð minni mynta sveiflast yfirleitt meira en verð bitcoin, og oft er erfiðara að selja þær. Margar hafa horfið eða orðið verðlausar. Kynntu þér því vel hver stendur á bak við mynt og til hvers hún er í raun notuð.
Ritstjórn Myntkaupa skrifar allt efni Rafmyntaskólans og yfirfer það reglulega. Efnið er til fræðslu og er ekki fjárfestingarráðgjöf. Ritstjórnarstefna. Uppfært 18. október 2026.