Bálkakeðja (e. blockchain) er færsluskrá þar sem færslur eru skráðar í réttri röð, í hópum sem kallast bálkarBálkurHópur færslna sem bætist við bálkakeðjuna í einu lagi, ásamt tilvísun í bálkinn á undan.. Hver nýr bálkur vísar í bálkinn á undan, svo úr verður keðja alla leið aftur að fyrstu færslunni. Bálkakeðjur eru grunnurinn að flestum rafmyntum, til dæmis bitcoin og ether.
Hvernig tengjast bálkarnir?
Hver bálkur geymir tætigildiTætigildiStuttur stafastrengur, eins konar fingrafar, sem reiknaður er út frá gögnum og gjörbreytist ef gögnunum er breytt um einn staf. bálksins á undan. Tætigildi er eins konar fingrafar af gögnum: ef einum staf er breytt verður fingrafarið allt annað. Ef einhver breytti gamalli færslu fengi bálkurinn hennar nýtt fingrafar, og það passaði ekki lengur við tilvísunina í næsta bálki. Allir sem skoða keðjuna sæju strax að eitthvað væri bogið við hana.
Þess vegna er aðeins bætt aftan við bálkakeðju en henni aldrei breytt aftur í tímann. Þetta minnir á þinglýsingabók: nýjar færslur bætast aftast og eldri skráningar standa óhaggaðar.
Hver heldur utan um bálkakeðjuna?
Í opnum bálkakeðjum eins og Bitcoin geyma þúsundir nóðaNóðaTölva sem keyrir hugbúnað rafmyntanets, geymir afrit af bálkakeðjunni og athugar hvort nýjar færslur og bálkar standist reglurnar. afrit af allri keðjunni. Þær koma sér saman um hvaða bálkur er næstur eftir föstum reglum, til dæmis proof of workProof of workSamstöðuaðferð þar sem rétturinn til að bæta næsta bálki við bálkakeðjuna fellur í hlut þess sem fyrstur leysir erfiða reikningsþraut.. Enginn einn aðili ræður því hvað fer í skrána.
Af hverju skiptir þetta máli?
Bálkakeðja gerir ókunnugu fólki kleift að treysta sömu skránni án þess að treysta hvert öðru. Gallinn er sá að mistök verða ekki leiðrétt: rafmynt sem fer á rangt veskisfang situr þar áfram.
Orðið „blockchain“ kemur reyndar hvergi fyrir í hvítbók Bitcoin. Þar er talað um keðju af bálkum, og heitið festist í sessi seinna.
Ritstjórn Myntkaupa skrifar allt efni Rafmyntaskólans og yfirfer það reglulega. Efnið er til fræðslu og er ekki fjárfestingarráðgjöf. Ritstjórnarstefna. Uppfært 18. október 2026.