Proof of work

Samstöðuaðferð þar sem rétturinn til að bæta næsta bálki við bálkakeðjuna fellur í hlut þess sem fyrstur leysir erfiða reikningsþraut.

Proof of work er aðferð sem bálkakeðja notar til að ákveða hver fær að bæta við næsta bálkiBálkurHópur færslna sem bætist við bálkakeðjuna í einu lagi, ásamt tilvísun í bálkinn á undan.. Nafnið merkir sönnun á unninni vinnu: þátttakendur verða að leggja fram raunverulega vinnu, útreikninga sem kosta vélbúnað og rafmagn, og lausn á reikningsþraut er sönnunin fyrir vinnunni. Bitcoin notar proof of work, og það gera líka til dæmis Dogecoin og Litecoin.

Hvernig virkar proof of work?

Galdurinn er sá að afar erfitt er að leysa þrautina en auðvelt að sannreyna lausnina. Námuvinnsluaðili þarf gríðarlegan fjölda tilrauna til að finna rétta tölu. Hver nóðaNóðaTölva sem keyrir hugbúnað rafmyntanets, geymir afrit af bálkakeðjunni og athugar hvort nýjar færslur og bálkar standist reglurnar. getur hins vegar athugað lausnina með einum útreikningi.

Þetta minnir á talnalás. Það tekur langan tíma að prófa allar samsetningar, en um leið og einhver segir þér rétta talnarunu sérðu strax hvort hún opni lásinn.

Hugmyndin er eldri en Bitcoin. Í hvítbókHvítbókSkjal þar sem höfundar rafmyntar eða verkefnis lýsa hvernig það virkar, til hvers það er og hvaða reglur gilda um það. Bitcoin er vísað í Hashcash, kerfi Adams Back sem var hugsað sem vörn gegn ruslpósti.

Af hverju skiptir proof of work máli?

Proof of work gerir svindl dýrt. Til að breyta gamalli færslu þyrfti að vinna verkið upp á nýtt fyrir þann bálk og alla bálka á eftir, og ná svo heiðarlegu námuvinnsluaðilunum. Það krefst meiri reiknigetuReiknigetaFjöldi ágiskana sem allar námuvinnslutölvur rafmyntanets gera á sekúndu, og mælikvarði á hve vel netið er varið gegn árásum. en allir hinir ráða yfir samanlagt.

Proof of work notar mikið rafmagn, og það er ein helsta gagnrýnin á Bitcoin. Á móti er bent á að orkan sé einmitt það sem gerir netið öruggt, og samkvæmt rannsókn Cambridge-háskóla frá 2025 kemur rúmur helmingur hennar frá endurnýjanlegum orkugjöfum og kjarnorku. Ethereum hætti að nota proof of work árið 2022 og tók upp proof of stakeProof of stakeSamstöðuaðferð þar sem rafmynt er lögð að veði fyrir réttinum til að búa til bálka, og sá sem svindlar getur tapað hluta veðsins., sem notar um 99,95% minni orku.

Ritstjórn Myntkaupa skrifar allt efni Rafmyntaskólans og yfirfer það reglulega. Efnið er til fræðslu og er ekki fjárfestingarráðgjöf. Ritstjórnarstefna. Uppfært 18. október 2026.