Sýndareign

Á enskucrypto-asset

Lagahugtak yfir rafmyntir og tóka: stafræn framsetning á virði eða réttindum sem má millifæra og varðveita með bálkakeðjutækni.

Sýndareign (e. crypto-asset) er lagahugtakið yfir rafmyntirRafmyntStafrænn gjaldmiðill sem byggir á dulritun og er skráður í sameiginlega færsluskrá, án þess að banki eða ríki gefi hann út eða stjórni honum. og tóka. Í íslenskum lögum er sýndareign skilgreind sem „stafræn framsetning á virði eða réttindum sem unnt er að millifæra og varðveita rafrænt með dreifðri færsluskrártækni eða sambærilegri tækni“.

Rafmynt eða sýndareign?

Í daglegu tali segjum við rafmynt. Sýndareign er orðið sem lögin nota, til dæmis lög nr. 101/2025 um markaði fyrir sýndareignir og lög nr. 140/2018 um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Skilgreiningin kemur úr MiCAMiCAReglugerð ESB um markaði fyrir sýndareignir, sem gildir á Íslandi frá 1. janúar 2026 og setur sömu reglur um rafmyntaþjónustu um allt EES., reglugerð ESB um markaði fyrir sýndareignir.

„Dreifð færsluskrártækni“ er lagamálið yfir bálkakeðjurBálkakeðjaOpin færsluskrá þar sem færslur eru geymdar í bálkum og hver bálkur vísar í þann á undan, svo ekki er hægt að breyta eldri færslum án þess að það sjáist. og skylda tækni. Bitcoin, ether og stöðugleikamyntirStöðugleikamyntRafmynt sem er hönnuð til að halda stöðugu verði, oftast með því að fylgja gengi Bandaríkjadals eða annars gjaldmiðils. eru því allt sýndareignir.

Tegundir sýndareigna

MiCA skiptir sýndareignum í þrjá flokka:

  • Rafeyristókar eiga að halda stöðugu verðgildi með vísun í einn opinberan gjaldmiðil, eins og USDC, sem fylgir Bandaríkjadal.
  • Eignatengdir tókar eiga að halda stöðugu verðgildi með vísun í aðrar eignir eða blöndu þeirra, til dæmis nokkra gjaldmiðla.
  • Aðrar sýndareignir, til dæmis bitcoin og ether.

Sumt fellur utan MiCA þótt það sé skráð á bálkakeðju. Þar á meðal eru tókar sem teljast fjármálagerningar, eins og verðbréf, og NFTNFTEinstakur tóki á bálkakeðju sem sýnir hver á tiltekna eign, til dæmis stafrænt listaverk, aðgöngumiða eða hlut í tölvuleik. sem eru einstök og ekki skiptanleg.

Að eitthvað teljist sýndareign segir ekkert um verðgildi þess eða öryggi. Það segir aðeins hvaða reglur gilda um það.

Ritstjórn Myntkaupa skrifar allt efni Rafmyntaskólans og yfirfer það reglulega. Efnið er til fræðslu og er ekki fjárfestingarráðgjöf. Ritstjórnarstefna. Uppfært 18. október 2026.