Rafmynt

Á enskucryptocurrency

Stafrænn gjaldmiðill sem byggir á dulritun og er skráður í sameiginlega færsluskrá, án þess að banki eða ríki gefi hann út eða stjórni honum.

Rafmynt (e. cryptocurrency) er stafrænn gjaldmiðill sem enginn seðlabanki gefur út og enginn banki geymir. Í staðinn eru allar færslur skráðar í sameiginlega færsluskrá, oftast bálkakeðjuBálkakeðjaOpin færsluskrá þar sem færslur eru geymdar í bálkum og hver bálkur vísar í þann á undan, svo ekki er hægt að breyta eldri færslum án þess að það sjáist., sem fjöldi tölva heldur utan um í sameiningu. DulritunDulritunStærðfræðilegar aðferðir sem vernda upplýsingar og sanna hver sendi þær, og eru undirstaðan að öryggi rafmynta. tryggir að aðeins sá sem ræður yfir rafmyntinni geti sent hana.

Hvernig virkar rafmynt?

Í heimabankanum sérðu innstæðu sem bankinn heldur skrá yfir. Í rafmyntakerfi er engin slík miðlæg skrá. Þú átt lykla í rafmyntaveski og notar þá til að undirrita færslur. Netið athugar undirskriftina og bætir færslunni við skrána. Eftir það er ekki hægt að breyta henni.

Fyrsta rafmyntin var BitcoinBitcoinFyrsta og stærsta rafmyntin, stafrænn gjaldmiðill sem enginn einn aðili stjórnar og takmarkast við 21 milljón bitcoin. og fyrsti bálkur hennar varð til 3. janúar 2009. Síðan hafa þúsundir bæst við. Sumar eru hugsaðar sem greiðslumiðill, aðrar til að keyra forrit, og stöðugleikamyntirStöðugleikamyntRafmynt sem er hönnuð til að halda stöðugu verði, oftast með því að fylgja gengi Bandaríkjadals eða annars gjaldmiðils. eiga að fylgja verði hefðbundins gjaldmiðils.

Rafmynt eða sýndareign?

Í daglegu tali er talað um rafmyntir. Í lögum er notað orðið sýndareignSýndareignLagahugtak yfir rafmyntir og tóka: stafræn framsetning á virði eða réttindum sem má millifæra og varðveita með bálkakeðjutækni., sem er víðara hugtak. Á Íslandi gilda lög nr. 101/2025 um markaði fyrir sýndareignir. Þau byggja á evrópsku MiCA-reglugerðinni og tóku gildi 1. janúar 2026.

Hvað er gott að vita?

Rafmynt er ekki lögeyrir og engin innstæðutrygging fylgir henni. Verðið getur sveiflast mikið á skömmum tíma, og rafmynt sem fer á rangan stað fæst yfirleitt ekki aftur. Því borgar sig að kynna sér grunnatriðin áður en þú kaupir.

Ritstjórn Myntkaupa skrifar allt efni Rafmyntaskólans og yfirfer það reglulega. Efnið er til fræðslu og er ekki fjárfestingarráðgjöf. Ritstjórnarstefna. Uppfært 18. október 2026.