Dulritun

Á enskucryptography

Stærðfræðilegar aðferðir sem vernda upplýsingar og sanna hver sendi þær, og eru undirstaðan að öryggi rafmynta.

Dulritun (e. cryptography) er sú grein stærðfræði og tölvunarfræði sem fæst við að vernda upplýsingar og sanna uppruna þeirra. Á ensku draga rafmyntir nafn sitt af henni (e. cryptocurrency), því það er dulritun sem heldur þeim öruggum án banka eða annarra milliliða.

Hvernig er dulritun notuð í rafmyntum?

Tvær aðferðir skipta mestu máli:

  • Lyklapör og stafrænar undirskriftir. Hvert veski byggir á einkalykliEinkalykillLeynileg tala sem sannar að þú eigir rafmyntina í veskinu þínu. Sá sem hefur einkalykilinn ræður yfir rafmyntinni. og dreifilykliDreifilykillOpinber lykill, reiknaður út frá einkalyklinum, sem óhætt er að deila og aðrir nota til að staðfesta undirskriftir þínar. sem reiknaður er út frá honum. Þú undirritar færslu með einkalyklinum og allir geta staðfest undirskriftina með dreifilyklinum. Hins vegar er ekki hægt að reikna einkalykilinn út frá dreifilyklinum.
  • Tætiföll. Tætifall breytir gögnum í stutt fingrafar, svokallað tætigildiTætigildiStuttur stafastrengur, eins konar fingrafar, sem reiknaður er út frá gögnum og gjörbreytist ef gögnunum er breytt um einn staf., sem gjörbreytist ef gögnunum er breytt um einn staf. Bálkarnir í bálkakeðjunniBálkakeðjaOpin færsluskrá þar sem færslur eru geymdar í bálkum og hver bálkur vísar í þann á undan, svo ekki er hægt að breyta eldri færslum án þess að það sjáist. eru tengdir saman með slíkum fingraförum.

Líkja má þessu við innsigli á umslagi. Allir sjá hver innsiglaði það og hvort það hafi verið rofið, en enginn getur falsað innsiglið án stimpilsins.

Af hverju skiptir hún máli?

Dulritun gerir ókunnugu fólki kleift að treysta færslum án þess að treysta hvert öðru. Hún er ein ástæða þess að engum hefur tekist að falsa bitcoin.

Veiki hlekkurinn er sjaldnast stærðfræðin sjálf, heldur fólkið. Ef einhver kemst yfir einkalykilinn þinn eða endurheimtarorðinEndurheimtarorðRöð 12 eða 24 orða sem allir lyklar veskisins eru reiknaðir út frá, svo hver sem hefur orðin getur endurheimt veskið og tekið rafmyntina. hjálpar engin dulritun. Þess vegna reyna svikahrappar frekar að blekkja fólk en að brjóta dulritunina.

Ritstjórn Myntkaupa skrifar allt efni Rafmyntaskólans og yfirfer það reglulega. Efnið er til fræðslu og er ekki fjárfestingarráðgjöf. Ritstjórnarstefna. Uppfært 18. október 2026.