Gas er mælieining fyrir vinnuna sem þarf til að framkvæma aðgerð á EthereumEthereumOpin bálkakeðja sem getur keyrt forrit og snjallsamninga, með eigin rafmynt sem heitir ether (ETH).-netinu. Hver aðgerð kostar ákveðið magn af gasi, og færslugjaldiðFærslugjaldGjald sem greitt er rafmyntaneti fyrir að taka færslu með í bálk, en ekki banka eða fyrirtæki. er það magn margfaldað með verðinu á hverja einingu. Gjaldið er greitt í Ether (ETH)Ether (ETH)Rafmynt Ethereum-netsins, notuð til að greiða færslugjöld, sem veð við staðfestingu bálka og til að senda verðmæti á milli fólks..
Líkja má gasi við eldsneyti á bíl. Lengri ferð kallar á meira eldsneyti, og flóknari aðgerð kallar á meira gas. Einföld sending á ETH notar alltaf 21.000 gaseiningar, en flókinn snjallsamningurSnjallsamningurForrit á bálkakeðju sem keyrir sjálfkrafa þegar tiltekin skilyrði eru uppfyllt og gerir nákvæmlega það sem það var forritað til að gera. getur notað margfalt meira.
Hvernig er gjaldið reiknað?
Verð á gasi er gefið upp í gwei. Eitt gwei er einn milljarðasti hluti úr einu ETH. Gjaldið skiptist í tvennt:
- Grunngjald, sem netið ákveður eftir álagi hverju sinni. Það er brennt, það er að segja tekið varanlega úr umferð.
- Þjórfé (e. priority fee), aukagreiðsla sem þú bætir við. Hún rennur til staðfestingaraðilans sem tekur færsluna með í bálk.
Grunngjaldið hefur verið brennt síðan í ágúst 2021, þegar svokölluð London-uppfærsla tók gildi.
Dæmi
Segjum að grunngjald og þjórfé séu samtals 2 gwei á hverja einingu. Einföld sending kostar þá 21.000 × 2 = 42.000 gwei, eða 0,000042 ETH.
Hvað er gott að vita?
Ef færsla mistekst, til dæmis vegna þess að snjallsamningur hafnar henni, greiðir þú samt fyrir gasið sem hún notaði. Gasverð hækkar þegar mikið er að gera á netinu, og þá getur borgað sig að bíða eftir rólegri tíma.
Ritstjórn Myntkaupa skrifar allt efni Rafmyntaskólans og yfirfer það reglulega. Efnið er til fræðslu og er ekki fjárfestingarráðgjöf. Ritstjórnarstefna. Uppfært 18. október 2026.