Gwei

Lítil eining af ether, einn milljarðasti hluti úr einu ETH. Gasverð og færslugjöld á Ethereum eru yfirleitt gefin upp í gwei.

Gwei er eining af Ether (ETH)Ether (ETH)Rafmynt Ethereum-netsins, notuð til að greiða færslugjöld, sem veð við staðfestingu bálka og til að senda verðmæti á milli fólks., gjaldmiðli Ethereum-netsins. Eitt gwei er einn milljarðasti hluti úr einu ETH, það er 0,000000001 ETH. Gwei er notað til að gefa upp verð á gasiGasMælieining á Ethereum-netinu fyrir þá reiknivinnu sem færsla eða snjallsamningur krefst, og ræður því hve hátt færslugjaldið verður., og þar með færslugjöldFærslugjaldGjald sem greitt er rafmyntaneti fyrir að taka færslu með í bálk, en ekki banka eða fyrirtæki. á Ethereum, því upphæðirnar eru svo smáar að óþægilegt væri að skrifa þær í ETH.

Einingar ether

Minnsta eining ether heitir wei. Nafnið er yfirleitt rakið til tölvunarfræðingsins Wei Dai, sem lýsti hugmyndinni b-money árið 1998, áratug áður en bitcoin kom fram. Nafnið gwei stendur fyrir gígawei, það er milljarð wei.

EiningÍ weiÍ ETH
Wei10,000000000000000001
Gwei1.000.000.0000,000000001
Ether1.000.000.000.000.000.0001

Þetta minnir á Satoshi (sats)Satoshi (sats)Minnsta eining bitcoin: eitt satoshi er hundraðmilljónasti hluti úr einu bitcoin, eða 0,00000001 bitcoin., minnstu einingu bitcoin. Munurinn er sá að bitcoin skiptist í 100 milljónir satoshi, en eitt ETH skiptist í trilljón wei.

Dæmi

Einföld sending á ETH notar 21.000 gaseiningar. Ef grunngjald og forgangsgjald eru samtals 5 gwei á hverja einingu kostar sendingin 21.000 × 5 = 105.000 gwei, eða 0,000105 ETH. Ef eitt ETH kostaði 500.000 kr. væru það um 52 krónur.

Gasverðið breytist eftir álagi. Á rólegum tímum hefur það farið undir 1 gwei, en þegar mest hefur gengið á hefur það farið í hundruð gwei.

Af hverju skiptir það máli?

Veski sýna oft gasverðið í gwei áður en þú staðfestir færslu. Ef þú veist hvað gwei er sérðu hvort gjaldið sé eðlilegt eða óvenju hátt, og getur ákveðið að bíða ef mikið er að gera. Gjaldið skiptist í grunngjald og forgangsgjaldGrunngjald og forgangsgjaldTveir hlutar færslugjalds á Ethereum. Netið ákveður grunngjaldið, sem er brennt, en forgangsgjaldið rennur til staðfestingaraðilans., og þú getur lesið nánar um það þar.

Ritstjórn Myntkaupa skrifar allt efni Rafmyntaskólans og yfirfer það reglulega. Efnið er til fræðslu og er ekki fjárfestingarráðgjöf. Ritstjórnarstefna. Uppfært 2. nóvember 2026.