Leifturnetið (e. Lightning Network) er greiðslunet sem byggt er ofan á Bitcoin-netinuBitcoinFyrsta og stærsta rafmyntin, stafrænn gjaldmiðill sem enginn einn aðili stjórnar og takmarkast við 21 milljón bitcoin.. Þar er hægt að senda bitcoin nær samstundis og fyrir örlítið gjald, því greiðslurnar eru ekki skráðar hver fyrir sig í bálkakeðjunaBálkakeðjaOpin færsluskrá þar sem færslur eru geymdar í bálkum og hver bálkur vísar í þann á undan, svo ekki er hægt að breyta eldri færslum án þess að það sjáist..
Hvernig virkar Leifturnetið?
Leifturnetið byggir á greiðslurásum (e. payment channels). Tveir aðilar læsa bitcoin í sameiginlega rás með einni færslu á Bitcoin-netinu. Eftir það geta þeir greitt hvor öðrum fram og til baka eins oft og þeir vilja, og aðeins staðan á milli þeirra breytist. Þegar rásinni er lokað er lokastaðan skráð á Bitcoin-netinu.
Þetta er svipað og að láta skrifa hjá sér á kaffihúsi. Hver kaffibolli er skrifaður hjá þér og þú gerir upp í einni greiðslu í lok mánaðar.
Greiðslur geta líka farið í gegnum rásir annarra. Þú þarft því ekki að opna rás við alla sem þú vilt borga.
Leifturnetið er dæmi um lag 2Lag 2 (layer 2)Kerfi sem byggt er ofan á bálkakeðju eins og Ethereum eða Bitcoin til að gera færslur hraðari og ódýrari en á grunnlaginu sjálfu. ofan á Bitcoin.
Hvað þarftu að vita?
- Hentar litlum greiðslum. Leifturnetið er hugsað fyrir daglegar greiðslur, til dæmis í verslunum eða á netinu, frekar en til að geyma sparnað.
- Annars konar greiðslubeiðni. Greitt er inn á Lightning-reikning (e. invoice), ekki á venjulegt Bitcoin-veskisfang. Bæði sendandi og móttakandi þurfa að styðja Leifturnetið.
- Yfirleitt heitt veski. Lightning-veski þurfa yfirleitt að vera nettengd og eru því heit veskiHeitt veskiRafmyntaveski á nettengdu tæki, eins og síma eða tölvu, sem er þægilegt í daglegri notkun en berskjaldaðra fyrir árásum., með þeirri áhættu sem því fylgir.
Ritstjórn Myntkaupa skrifar allt efni Rafmyntaskólans og yfirfer það reglulega. Efnið er til fræðslu og er ekki fjárfestingarráðgjöf. Ritstjórnarstefna. Uppfært 18. október 2026.