Lag 2 (e. layer 2) er kerfi sem byggt er ofan á grunnlagGrunnlag (layer 1)Grunnnetið sjálft, eins og Bitcoin eða Ethereum, sem skráir færslur og gengur endanlega frá þeim á eigin bálkakeðju., til dæmis Ethereum eða Bitcoin, til að afgreiða færslur hraðar og með lægri gjöldum. Lag 2 vinnur úr færslunum utan grunnlagsins en reiðir sig á það til að ganga endanlega frá þeim.
Hvernig virkar lag 2?
Á Ethereum er algengt að lag 2 sé svokallað rollup. Það framkvæmir færslur utan Ethereum-netsins, pakkar þeim saman og skráir gögnin síðan á Ethereum. Þannig deila margar færslur kostnaðinum af einni skráningu á grunnlaginu, og færslugjaldiðFærslugjaldGjald sem greitt er rafmyntaneti fyrir að taka færslu með í bálk, en ekki banka eða fyrirtæki. á hverja færslu lækkar.
Þetta er eins og að senda póst. Í stað þess að senda hundrað bréf, hvert í sínu umslagi, seturðu þau öll í einn kassa.
Til eru tvær meginleiðir:
- Optimistic rollups gera ráð fyrir að færslurnar séu réttar nema einhver mótmæli innan tiltekins frests.
- ZK-rollups senda með stærðfræðilega sönnun fyrir því að færslurnar séu réttar.
Arbitrum, Base og Optimism eru dæmi um lag 2 á Ethereum. LeifturnetiðLeifturnetiðGreiðslunet ofan á Bitcoin-netinu sem gerir bitcoin-greiðslur nær samstundis og ódýrar, án þess að hver greiðsla fari í bálkakeðjuna. er lag 2 á Bitcoin.
Hvað þarftu að vita?
- Sama veskisfang, annað netkerfi. Lag 2-kerfi á Ethereum nota sams konar veskisföng og Ethereum sjálft. Athugaðu því alltaf hvort móttakandinn styðji það netkerfiNetkerfiBálkakeðjan sem rafmynt eða tóki er skráð á og send um, til dæmis Bitcoin-netið eða Ethereum-netið. sem þú sendir á.
- Flutningur fer um brú. Til að færa rafmynt á milli grunnlags og lags 2 þarf brúBrúÞjónusta sem flytur rafmynt eða tóka á milli tveggja netkerfa, oftast með því að læsa eignina á öðru netinu og gefa út jafngildi á hinu.. Úttekt úr optimistic rollup aftur á Ethereum getur tekið um viku með opinberri brú kerfisins.
- Ekki alveg dreifstýrt. Í mörgum lag 2-kerfum er það enn einn aðili sem raðar færslunum.
Ritstjórn Myntkaupa skrifar allt efni Rafmyntaskólans og yfirfer það reglulega. Efnið er til fræðslu og er ekki fjárfestingarráðgjöf. Ritstjórnarstefna. Uppfært 18. október 2026.