Skortsala

Á enskushort selling

Að selja eign sem þú átt ekki, í von um að kaupa hana aftur á lægra verði. Skortsali hagnast ef verðið lækkar.

Skortsala (e. short selling) er leið til að hagnast á verðlækkun. Í hefðbundinni skortsölu færð þú eign lánaða, selur hana strax og kaupir hana aftur síðar til að skila henni. Ef verðið hefur lækkað á meðan heldur þú mismuninum.

Dæmi

Þú færð lánuð 100 hlutabréf og selur þau á 1.000 kr. stykkið, samtals fyrir 100.000 kr.

  • Ef verðið fer niður í 800 kr. kaupir þú bréfin aftur fyrir 80.000 kr. og skilar þeim. Þú hagnast um 20.000 kr., fyrir utan lánskostnað.
  • Ef verðið fer upp í 1.500 kr. kostar 150.000 kr. að kaupa þau aftur. Þá tapar þú 50.000 kr.

Þegar þú kaupir eign getur þú í mesta lagi tapað því sem þú lagðir út. Í skortsölu eru tapinu engin efri mörk sett, því verðið getur hækkað endalaust. Tapið getur því orðið margfalt meira en upphæðin sem þú fékkst fyrir söluna.

Skortsala með rafmynt

Í viðskiptum með rafmyntir fer skortsala oftast fram með afleiðumAfleiðurSamningar sem draga verðgildi sitt af annarri eign, til dæmis hlutabréfum, gjaldmiðli eða rafmynt., einkum ótímabundnum framvirkum samningumÓtímabundinn framvirkur samningurAfleiða án gjalddaga sem fylgir verði rafmyntar. Reglulegar greiðslur halda henni nálægt markaðsverði og hún leyfir skuldsetningu.. Þá tekur þú skortstöðu (e. short) sem hagnast ef verðið lækkar, án þess að fá rafmyntina lánaða. Slíkri stöðu fylgir yfirleitt skuldsetningSkuldsetningAð eiga viðskipti með lánsfé, sem margfaldar bæði hagnað og tap og getur þurrkað út allt framlagið á skömmum tíma.. Ef verðið hækkar of mikið lokar kauphöllin stöðunni og tryggingin tapast, oft á mjög skömmum tíma.

Skortsala er lögleg og algeng á fjármálamörkuðum, en yfirvöld geta takmarkað hana á óróatímum. Í bankahruninu, 7. október 2008, bannaði Fjármálaeftirlitið, sem nú er hluti af Seðlabanka Íslands, skortsölu hlutabréfa í Kaupþingi, Landsbankanum, Glitni og fleiri fjármálafyrirtækjum.

Ritstjórn Myntkaupa skrifar allt efni Rafmyntaskólans og yfirfer það reglulega. Efnið er til fræðslu og er ekki fjárfestingarráðgjöf. Ritstjórnarstefna. Uppfært 18. október 2026.