Solana (SOL)

Á enskuSolana

Bálkakeðja sem er hönnuð fyrir hraðar og ódýrar færslur. SOL er rafmynt netsins og er notuð í færslugjöld og staking.

Solana er opin bálkakeðjaBálkakeðjaOpin færsluskrá þar sem færslur eru geymdar í bálkum og hver bálkur vísar í þann á undan, svo ekki er hægt að breyta eldri færslum án þess að það sjáist. sem er hönnuð til að afgreiða mikinn fjölda færslna hratt og fyrir lágt gjald. SOL er rafmynt netsins: með henni er greitt fyrir færslur, og hún er lögð að veði til að tryggja netið. Anatoly Yakovenko lýsti hugmyndinni árið 2017, og netið fór í gang 16. mars 2020.

Hvernig virkar Solana?

Solana notar proof of stakeProof of stakeSamstöðuaðferð þar sem rafmynt er lögð að veði fyrir réttinum til að búa til bálka, og sá sem svindlar getur tapað hluta veðsins.. StaðfestingaraðilarStaðfestingaraðiliÞátttakandi á neti sem notar proof of stake og leggur eigin rafmynt að veði til að búa til og staðfesta bálka gegn umbun. leggja SOL að veði og skiptast á að búa til bálka, og nýr bálkur bætist við á um 0,4 sekúndna fresti. Frá upphafi hefur netið notað proof of history, eins konar stafræna klukku sem sannar í hvaða röð atburðir gerðust. Uppfærslan Alpenglow á að taka gildi 21. október 2026, og þá hættir proof of history að gegna hlutverki í samstöðunni.

Grunngjald fyrir færslu er 0,000005 SOL fyrir hverja undirskrift, og helmingi þess er eytt. Ekkert hámark er á fjölda SOL. Árleg útgáfa nýrra SOL hófst í 8% og lækkar um 15% á ári þar til hún nær 1,5%.

Til hvers er Solana notað?

Á Solana eru meðal annars greiðslur með stöðugleikamyntumStöðugleikamyntRafmynt sem er hönnuð til að halda stöðugu verði, oftast með því að fylgja gengi Bandaríkjadals eða annars gjaldmiðils., DeFiDeFi (dreifstýrð fjármál)Fjármálaþjónusta, eins og lán, sparnaður og viðskipti, sem keyrir á snjallsamningum á bálkakeðju í stað banka eða annarra milliliða., NFT og memecoins. Visa hóf að gera upp greiðslur í USDC á Solana í september 2023.

Hvað er gott að vita?

Solana-netið hefur nokkrum sinnum stöðvast, síðast í um fimm klukkustundir 6. febrúar 2024. Verð SOL sveiflast mikið: frá nóvember 2021 til desember 2022 féll það um rúm 95%.

Ritstjórn Myntkaupa skrifar allt efni Rafmyntaskólans og yfirfer það reglulega. Efnið er til fræðslu og er ekki fjárfestingarráðgjöf. Ritstjórnarstefna. Uppfært 18. október 2026.