Total value locked (TVL)

Heildarvirði rafmynta sem notendur hafa lagt inn í snjallsamninga DeFi-þjónustu. Algengur mælikvarði á stærð hennar.

Total value locked, skammstafað TVL, er heildarvirði þeirra rafmynta sem notendur hafa lagt inn í snjallsamningaSnjallsamningurForrit á bálkakeðju sem keyrir sjálfkrafa þegar tiltekin skilyrði eru uppfyllt og gerir nákvæmlega það sem það var forritað til að gera. tiltekinnar DeFiDeFi (dreifstýrð fjármál)Fjármálaþjónusta, eins og lán, sparnaður og viðskipti, sem keyrir á snjallsamningum á bálkakeðju í stað banka eða annarra milliliða.-þjónustu. Á íslensku mætti tala um heildarvirði læstra eigna. TVL er yfirleitt gefið upp í Bandaríkjadölum og oft notað til að bera saman stærð DeFi-verkefna eða heilla bálkakeðja.

Hvernig er TVL reiknað?

Algengasta heimildin er greiningarsíðan DefiLlama. Þar er lagt saman virði allra tóka sem liggja í snjallsamningum hverrar þjónustu, á markaðsverði hverju sinni. Hjá lánaþjónustu eru það til dæmis tókar sem lagðir hafa verið inn sem veðVeðEign sem lögð er fram til tryggingar fyrir láni. Í DeFi þarf veðið yfirleitt að vera meira virði en lánið. eða til útlána, og hjá dreifstýrðri kauphöll tókarnir í sjóðunumLiquidity poolSameiginlegur sjóður tóka í snjallsamningi sem fólk á viðskipti við í dreifstýrðum kauphöllum. Þeir sem leggja í hann fá hlut af þóknunum.. Tókar sem eru ekki enn komnir í umferð eru undanskildir.

Hvað segir TVL ekki?

  • TVL fylgir verðinu. Ef verð ether fellur um 30% lækkar TVL mikið, þótt enginn hafi tekið neitt út. Hækkandi TVL þarf því ekki að þýða að fleiri noti þjónustuna.
  • Sama féð getur verið talið tvisvar. Segjum að einhver leggi ether í liquid stakingLiquid stakingStaking þar sem þú færð tóka sem kvittun fyrir veðinu. Tókann má selja eða nota á meðan rafmyntin er bundin., fái tóka í staðinn og leggi hann svo fram sem veð í lánaþjónustu. Þá getur sama féð birst í TVL beggja þjónustanna. DefiLlama leyfir notendum að velja hvort slíkt sé talið með þegar tölur eru lagðar saman.
  • TVL segir ekkert um öryggi eða hagnað. Þjónusta með hátt TVL getur verið með villur í kóðanum. TVL getur líka verið blásið upp með umbun sem greidd er í eigin tóka þjónustunnar.

TVL-tala segir því mest þegar þú veist hvenær hún var mæld, hvaðan hún kemur og hvað var talið með.

Ritstjórn Myntkaupa skrifar allt efni Rafmyntaskólans og yfirfer það reglulega. Efnið er til fræðslu og er ekki fjárfestingarráðgjöf. Ritstjórnarstefna. Uppfært 18. október 2026.