Tilboðabók

Á enskuorder book

Listi yfir öll opin kauptilboð og sölutilboð í tiltekna eign, raðað eftir verði. Viðskipti verða þegar tilboð mætast.

Tilboðabók (e. order book) er listi yfir öll opin kauptilboð og sölutilboð í tiltekna eign, raðað eftir verði. Öðrum megin eru kauptilboð (e. bids), hinum megin sölutilboð (e. asks). Viðskipti verða þegar kaupandi og seljandi ná saman um verð.

Hvernig virkar tilboðabók?

Flestar kauphallir nota miðlæga tilboðabók (e. central limit order book). Þú getur sett inn tilboð á ákveðnu verði og beðið eftir að einhver gangi að því (e. limit order). Þú getur líka keypt eða selt strax á besta verði sem býðst (e. market order).

Kerfið parar tilboðin saman eftir verði og tíma. Hæsta kauptilboðið og lægsta sölutilboðið ganga fyrir, og ef tvö tilboð eru á sama verði gengur það fyrir sem kom fyrst. Munurinn á hæsta kauptilboði og lægsta sölutilboði er verðbiliðVerðbilMunurinn á kaupverði og söluverði sömu eignar á sama tíma, oft notaður sem gjald í viðskiptum með rafmyntir..

Kauphöllin hér á landi, Nasdaq Iceland, parar tilboð með þessum hætti, og það gera líka flestar miðlægar kauphallirMiðlæg kauphöll (CEX)Rafmyntamiðlun sem fyrirtæki rekur, þar sem fyrirtækið sér um viðskiptin og geymir rafmyntina fyrir viðskiptavini sína. með rafmyntir. Sumar dreifstýrðar kauphallirDreifstýrð kauphöll (DEX)Kauphöll sem keyrir á snjallsamningum, þar sem fólk skiptir rafmyntum beint úr eigin veski án fyrirtækis sem milliliðar., eins og Hyperliquid, halda tilboðabókinni á eigin bálkakeðju.

Tilboðabók eða sjálfvirkur viðskiptavaki

Flestar dreifstýrðar kauphallir nota ekki tilboðabók heldur sjálfvirkan viðskiptavakaSjálfvirkur viðskiptavaki (AMM)Snjallsamningur sem verðleggur tóka í dreifstýrðri kauphöll með fastri formúlu, út frá því hve mikið er af hvorum tóka í sjóðnum. (AMM). Þar er verslað á móti sjóði af rafmyntum, og formúla ákveður verðið út frá hlutfallinu í sjóðnum. Í tilboðabók ákveða kaupendur og seljendur verðið sjálfir með tilboðum sínum.

Dýpt tilboðabókarinnar skiptir máli. Ef mörg tilboð eru nálægt núverandi verði er seljanleikinnSeljanleikiHve auðvelt er að kaupa eða selja eign fljótt á sanngjörnu verði, án þess að viðskiptin hreyfi verðið mikið. góður og stór viðskipti hreyfa verðið lítið.

Ritstjórn Myntkaupa skrifar allt efni Rafmyntaskólans og yfirfer það reglulega. Efnið er til fræðslu og er ekki fjárfestingarráðgjöf. Ritstjórnarstefna. Uppfært 18. október 2026.