Web3 er samheiti yfir hugmynd um nýja gerð internetsins, þar sem notendur eiga sjálfir gögn sín, stafrænar eignir og auðkenni í gegnum bálkakeðjurBálkakeðjaOpin færsluskrá þar sem færslur eru geymdar í bálkum og hver bálkur vísar í þann á undan, svo ekki er hægt að breyta eldri færslum án þess að það sjáist. og rafmyntirRafmyntStafrænn gjaldmiðill sem byggir á dulritun og er skráður í sameiginlega færsluskrá, án þess að banki eða ríki gefi hann út eða stjórni honum.. Gavin Wood, einn af stofnendum Ethereum, setti hugtakið fram árið 2014.
Web1, Web2 og Web3
Saga netsins er oft sögð í þremur skrefum:
- Web1 samanstóð að mestu af kyrrstæðum vefsíðum. Þú gast lesið en lítið annað.
- Web2 er netið sem flestir þekkja: samfélagsmiðlar og öpp þar sem þú býrð til efni, en fyrirtækin eiga vettvanginn og gögnin.
- Web3 á að bæta eignarhaldi við. Eignirnar eru í þínu eigin veskiRafmyntaveskiForrit eða tæki sem geymir lyklana að rafmyntinni þinni, svo þú getir tekið á móti henni, haldið utan um hana og sent hana. og forritin, svokölluð dAppdApp (dreifstýrt forrit)Forrit sem keyrir á snjallsamningum á bálkakeðju í stað netþjóna eins fyrirtækis, til dæmis dreifstýrð kauphöll eða lánaþjónusta., keyra á bálkakeðju.
Í Web3 skráir þú þig oft inn í forrit með veskinu þínu, í stað notandanafns og lykilorðs.
Hverjar eru takmarkanirnar?
Web3 er enn í mótun. Á ethereum.org eru meðal annars nefndar þessar takmarkanir:
- færslugjöld eru enn of há fyrir marga
- tæknilegi þröskuldurinn er hár og auðvelt er að gera mistök
- mikið af þjónustunni byggir enn á miðlægum innviðum
Eignarhaldinu fylgir líka ábyrgð. Ef þú týnir endurheimtarorðunumEndurheimtarorðRöð 12 eða 24 orða sem allir lyklar veskisins eru reiknaðir út frá, svo hver sem hefur orðin getur endurheimt veskið og tekið rafmyntina. er ekkert þjónustuver sem getur endurstillt aðganginn.
Ritstjórn Myntkaupa skrifar allt efni Rafmyntaskólans og yfirfer það reglulega. Efnið er til fræðslu og er ekki fjárfestingarráðgjöf. Ritstjórnarstefna. Uppfært 18. október 2026.