Ástarsvik

Á enskuromance scam

Svik þar sem svikahrappur byggir upp ástarsamband á netinu, oft mánuðum saman, til að fá fórnarlambið til að senda peninga eða rafmynt.

Ástarsvik (e. romance scam) eru svik þar sem svikahrappur þykist vera ástfanginn af þér til að ná af þér peningum. Sambandið hefst oftast á stefnumótaappi eða samfélagsmiðli og getur staðið í vikur eða mánuði áður en minnst er á peninga. Svikin eru dæmi um social engineeringSocial engineeringÞegar svikahrappar blekkja fólk, frekar en að brjótast inn í tölvukerfi, til að fá það til að gefa upp upplýsingar eða senda peninga.: traustið er vopnið.

Hvernig fara ástarsvik fram?

Svikahrappurinn notar falskar myndir og tilbúna sögu, oft um starf erlendis, til dæmis á olíuborpalli eða í hernum. Smám saman kemur upp vandamál sem kallar á peninga: sjúkrahúskostnaður, tollur eða flugmiði heim.

Algengt afbrigði tengist rafmyntum. Í stað þess að biðja um peninga segist manneskjan hafa grætt vel á rafmyntum og býðst til að kenna þér. Þér er vísað á falskan fjárfestingavef sem sýnir góðan hagnað, en þegar þú reynir að taka út eru peningarnir horfnir. Þetta eru í raun fjárfestingasvikFjárfestingasvikSvik þar sem lofað er miklum og öruggum hagnaði af fjárfestingu, oft í rafmynt, en svikahrappar taka einfaldlega peningana sem lagðir eru inn. í dulargervi, sem á ensku eru stundum kölluð pig butchering.

Varúðarmerki

Á vef 112 eru meðal annars nefnd þessi merki:

  • Manneskjan verður mjög fljótt ástfangin og segir það ítrekað.
  • Hún vill færa samtalið af stefnumótaappinu yfir í SMS, tölvupóst eða símtöl.
  • Hún ætlar alltaf að hitta þig, en eitthvað kemur alltaf upp á.
  • Hún gefur í skyn að hana bráðvanti peninga.

Önnur merki eru beiðni um að halda sambandinu leyndu, eða um að senda rafmynt á veskisfangVeskisfangRuna af bókstöfum og tölustöfum sem þú gefur upp til að taka á móti rafmynt, svipað og reikningsnúmer í banka. sem hún gefur upp.

Hvað gerir þú?

Ef þig grunar svik skaltu hætta öllum samskiptum. Sendu aldrei peninga eða rafmynt til einhvers sem þú hefur ekki hitt. Ef þú hefur sent peninga skaltu strax hafa samband við bankann þinn og tilkynna svo málið til lögreglu á Ísland.is. Þú þarft ekki að skammast þín: svikin eru skipulögð og hver sem er getur orðið fyrir þeim.

Ritstjórn Myntkaupa skrifar allt efni Rafmyntaskólans og yfirfer það reglulega. Efnið er til fræðslu og er ekki fjárfestingarráðgjöf. Ritstjórnarstefna. Uppfært 18. október 2026.