Eitrun veskisfangs (e. address poisoning) er svikaaðferð sem beinist að fólki sem afritar veskisföngVeskisfangRuna af bókstöfum og tölustöfum sem þú gefur upp til að taka á móti rafmynt, svipað og reikningsnúmer í banka. úr færslusögunni sinni. Nafnið vísar til þess að svikarinn „eitrar“ færslusöguna með fölsku veskisfangi sem lítur út eins og fang sem þú hefur notað áður. Ef þú afritar það í stað þess rétta fer rafmyntin beint til svikarans, og færslanFærslaSkráning á því að rafmynt flyst af einu veskisfangi á annað, undirrituð með einkalykli sendandans og geymd varanlega í bálkakeðjunni. verður ekki afturkölluð.
Hvernig fer þetta fram?
- Svikarinn fylgist með opinberum færslum á bálkakeðjunniBálkakeðjaOpin færsluskrá þar sem færslur eru geymdar í bálkum og hver bálkur vísar í þann á undan, svo ekki er hægt að breyta eldri færslum án þess að það sjáist. og sér að þú sendir reglulega á tiltekið veskisfang, til dæmis á reikninginn þinn hjá rafmyntamiðlun.
- Hann býr til veskisfang sem byrjar og endar á sömu stöfum. Flest veski sýna aðeins fyrstu og síðustu stafina, svo fölsku fangin líta eins út við fyrstu sýn.
- Hann sendir þér örlitla upphæð eða verðlausa tóka frá falska fanginu. Þá birtist það í færslusögunni þinni.
- Næst þegar þú sendir afritar þú fangið úr sögunni og velur óvart það falska.
Árásirnar eru sjálfvirkar og ódýrar, svo þær eru gerðar í gríðarlegu magni. Rannsókn sem kynnt var á USENIX Security-ráðstefnunni árið 2025 taldi um 270 milljónir slíkra tilrauna á Ethereum og BNB Smart Chain á tveimur árum. Tjónið nam að minnsta kosti 83,8 milljónum Bandaríkjadala. Í maí 2024 sendi einn notandi 1.155 WBTC, um 68 milljóna dala virði, á falskt fang. Svikarinn skilaði síðar mestu af fénu, en slíkt er sjaldgæft.
Hvernig verst þú?
- Afritaðu aldrei veskisfang úr færslusögunni. Fáðu það beint frá viðtakandanum, eða úr vistaðri skrá sem þú hefur sannreynt.
- Berðu allt fangið saman, ekki bara fyrstu og síðustu stafina.
- Sendu prufufærslu með lítilli upphæð þegar mikið er í húfi, og láttu viðtakandann staðfesta að hún hafi borist.
- Hunsaðu óvæntar smágreiðslur og ókunnuga tóka í veskinu. Ekki reyna að selja þá eða eiga við þá á annan hátt.
Eitrun veskisfangs brýtur ekki gegn öryggi veskisins sjálfs. Svikarinn kemst aldrei yfir einkalykilinnEinkalykillLeynileg tala sem sannar að þú eigir rafmyntina í veskinu þínu. Sá sem hefur einkalykilinn ræður yfir rafmyntinni. þinn. Hann treystir á það eitt að þú flýtir þér og afritir rangt fang.
Ritstjórn Myntkaupa skrifar allt efni Rafmyntaskólans og yfirfer það reglulega. Efnið er til fræðslu og er ekki fjárfestingarráðgjöf. Ritstjórnarstefna. Uppfært 2. nóvember 2026.