Ferðareglan

Á enskutravel rule

Regla sem skyldar þjónustuveitendur sýndareigna til að senda upplýsingar um sendanda og móttakanda með hverri millifærslu á rafmynt.

Ferðareglan (e. travel rule) skyldar þjónustuveitendur sýndareigna til að láta upplýsingar um sendanda og móttakanda fylgja hverri millifærslu á rafmynt. Upplýsingarnar „ferðast“ með færslunni og þaðan kemur nafnið.

Reglan byggir á reglugerð (ESB) 2023/1113 um upplýsingar sem fylgja skulu við millifærslu fjármuna og tiltekinna sýndareigna. Reglugerðin hefur lagagildi hér á landi samkvæmt 57. gr. a laga nr. 140/2018 um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, og hefur gilt frá 1. janúar 2026.

Hvernig virkar ferðareglan?

Þegar þú sendir rafmynt frá einum þjónustuveitanda sýndareignaCASP (þjónustuveitandi sýndareigna)Fyrirtæki með starfsleyfi samkvæmt MiCA til að veita þjónustu með sýndareignir, til dæmis kaup, sölu, vörslu eða millifærslur. til annars þarf sendandinn að láta fylgja upplýsingar eins og:

  • nafn sendanda, veskisfangVeskisfangRuna af bókstöfum og tölustöfum sem þú gefur upp til að taka á móti rafmynt, svipað og reikningsnúmer í banka. og heimilisfang eða fæðingardag og fæðingarstað
  • nafn móttakanda og veskisfang

Engin lágmarksupphæð er í reglunni. Hún gildir um allar millifærslur á milli þjónustuveitenda, stórar sem smáar. Ef upplýsingar vantar getur þjónustan sem tekur við hafnað færslunni, sent hana til baka eða beðið um upplýsingarnar áður en hún afhendir rafmyntina.

Reglan á rætur að rekja til alþjóðlega framkvæmdahópsins FATF, sem hafði lengi gert sömu kröfu um millifærslur í bönkum og útvíkkaði hana til sýndareigna árið 2019.

Hvað með þitt eigið veski?

Ef þú sendir meira en 1.000 evrur á veski í eigin vörsluEigin varslaÞegar þú geymir einkalyklana að rafmyntinni þinni í eigin veski, svo enginn annar ræður yfir henni en ábyrgðin á lyklunum er öll þín., eða tekur við slíkri upphæð þaðan, þarf þjónustan að meta hvort veskið sé í raun í þinni eigu eða undir þinni stjórn. Þess vegna gæti þjónustan beðið þig að staðfesta að veskið sé þitt.

Ferðareglan er hluti af peningaþvættisvörnumPeningaþvættisvarnir (AML)Reglur og aðgerðir sem eiga að hindra að fjármálakerfið, þar með talið rafmyntir, sé notað til peningaþvættis eða fjármögnunar hryðjuverka..

Ritstjórn Myntkaupa skrifar allt efni Rafmyntaskólans og yfirfer það reglulega. Efnið er til fræðslu og er ekki fjárfestingarráðgjöf. Ritstjórnarstefna. Uppfært 18. október 2026.