Memecoin

Rafmynt sem er sprottin af netgríni eða jarmi, hefur yfirleitt lítið sem ekkert notagildi og byggir verð sitt nær eingöngu á umtali.

Memecoin er rafmyntRafmyntStafrænn gjaldmiðill sem byggir á dulritun og er skráður í sameiginlega færsluskrá, án þess að banki eða ríki gefi hann út eða stjórni honum. sem er sprottin af netgríni, jarmi (e. meme), frægu dýri eða tískubylgju á samfélagsmiðlum. Slíkar myntir hafa yfirleitt engan sérstakan tilgang. Verðið ræðst nær eingöngu af því hve margir tala um myntina og vilja kaupa hana.

Dæmi

Fyrsta þekkta dæmið er DogecoinDogecoin (DOGE)Rafmynt sem varð til í gríni árið 2013, með Shiba Inu-hund úr jarmi sem merki, og hefur ekkert hámarksframboð., sem kom fram í desember 2013. Höfundarnir hugsuðu myntina sem grín og notuðu mynd af Shiba Inu-hundi úr vinsælu jarmi. Dogecoin varð samt ein af stærstu rafmyntum heims. Síðan hafa komið þúsundir eftirlíkinga, til dæmis Shiba Inu (SHIB)Shiba Inu (SHIB)Tóki á Ethereum-netinu frá árinu 2020 sem telst til memecoins og er nefndur eftir sömu hundategund og prýðir merki Dogecoin., sem er tókiTókiStafræn eign sem er búin til með snjallsamningi á bálkakeðju annarrar rafmyntar, í stað þess að hafa eigin bálkakeðju. á Ethereum-netinu.

Hver er áhættan?

  • Gífurlegar sveiflurSveiflurMælikvarði á hve mikið og hve hratt verð eignar hækkar og lækkar.. Verðið getur margfaldast á nokkrum dögum og fallið jafn hratt. Ein færsla á samfélagsmiðli getur hreyft það.
  • Lítið sem styður verðið. Flestar memecoins skila engum tekjum og hafa lítið notagildi, svo verðið getur fallið mikið þegar áhuginn dvínar.
  • Svik. Hver sem er getur búið til nýja mynt á nokkrum mínútum. Dæmi eru um að höfundar selji allt sitt um leið og verðið hækkar, svokallað rug pullRug pullSvik þar sem aðstandendur nýs tóka eða rafmyntaverkefnis safna fé frá kaupendum og hverfa síðan með það, svo tókinn verður verðlaus., eða að hópar keyri verðið upp og selji svo, sem kallast pump and dumpPump and dumpSvik þar sem verði lítillar rafmyntar er ýtt upp með áróðri svo skipuleggjendur geti selt dýrt og skilið aðra eftir með tapið..
  • FOMOFOMOÓttinn við að missa af (e. fear of missing out), sem fær fólk til að kaupa í flýti þegar verð hækkar hratt, oft nálægt toppnum. (e. fear of missing out). Sögur af fólki sem græddi stórt fá marga til að kaupa á versta tíma.

Hvað er gott að vita?

Memecoins eru meðal áhættusömustu rafmynta. Ef þú kaupir slíka mynt skaltu aðeins nota fé sem þú hefur efni á að tapa að fullu.

Ritstjórn Myntkaupa skrifar allt efni Rafmyntaskólans og yfirfer það reglulega. Efnið er til fræðslu og er ekki fjárfestingarráðgjöf. Ritstjórnarstefna. Uppfært 18. október 2026.